11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í C-deild Alþingistíðinda. (4978)

171. mál, samkomudagur Alþingis árið 1935

Hannes Jónsson:

Ég vil taka það fram, að ég tel þennan samkomudag, um ákveðinn er í frv., mjög óheppilegan. Hv. þm. Snæf. benti réttilega á það, að bezt væri að hafa samkomudag Alþ. í byrjun haustsins. En ég hefi heyrt, að það sé ákvörðun hæstv. ríkisstj., að þingið komi aftur saman í marz, standi yfir stuttan tíma í það skiptið, en verði svo frestað til næsta hausts. Ég fyrir mitt leyti tel það mjög varhugavert að taka upp slíka tilhögun. Ég tel, að nauðsynlegt sé, að einhver áætlun liggi a. m. k. fyrir um tilvonandi störf þessa fyrrihlutaþings, svo að fullum notum gæti komið.

Ég vil beina þeirri fyrirspurn til hæstv. ríkisstj., hver meiningin sé í þessu efni, og fá upplýsingar um það, hvort um slíka tilhögun geti verið að ræða.

Hæstv. stj. hefir fengið sér nefnd til aðstoðar, sem maður skyldi ætla, að létti eitthvað undir með undirbúning þingmála. Þessi n. hefir starfað um þingtímann, svo að hún ætti að geta látið eitthvað eftir sig liggja.