11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í C-deild Alþingistíðinda. (4979)
171. mál, samkomudagur Alþingis árið 1935
Forsrh. (Hermann Jónasson):
Þeirri fyrirspurn hefir verið beint til mín, hvort fresta eigi næsta þingi til hausts. Það fer alveg eftir því, hve tíminn notast vel á þinginu seinni partinn í vetur. Það er vitanlega ómögulegt að segja um það fyrirfram.
Viðvíkjandi því, sem hv. þm. Snæf. sagði um frv. þau, sem borin hafa verið fram á Alþ. núna, vil ég taka það fram, að það er jafnan svo um minni hl., að honum finnst málin sjaldan vera við sitt hæfi.
Það er ómögulegt að segja, hve mörg ágreiningsmál verða lögð fyrir næsta þing. Þess vegna vil ég ekki segja annað, en það, að stj. mun reyna að gera sitt bezta í þessu efni.