11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í C-deild Alþingistíðinda. (4983)
171. mál, samkomudagur Alþingis árið 1935
Pétur Halldórsson:
Ég tel mjög illa farið, ef tilgangurinn með þessu frv. er, að haldin verði tvö þing á næstu ári, sem bæði verða án efa löng, dýr, afkastalítil og gagnslítil. Ég tel hæstv. stj. vorkunnarlaust að ganga þannig frá þingmálum, að þingið þurfi ekki að standa lengur yfir en á meðan fjárl. eru til meðferðar.
Hér á þessu hv. þingi verður ekkert mál eftir, sem er svo nauðsynlegt, að nokkur minnsta ástæða sé til þess að kalla saman þing eftir nokkra mánuði til þess að ganga frá þeim málum. Það hafa verið skipaðar svo margar nefndir til þess að létta undir með hæstv. stj., að mér sýnist, að haga mætti undirbúningnum þannig, að þingið þyrfti ekki að taka mjög langan tíma. Ég álít, að heppilegast væri að hafa fjárlagaþing að haustinu til, vegna þess að á þeim tíma fæst bezt yfirlit yfir fjárhag ríkissjóðs. Það gleður mig, að hv. þm. Snæf. skuli ætla að bera fram brtt. við þetta frv. þess efnis, að þingið verði kvatt saman á haustin.
Ég verð að segja það, að það sæti sízt á núv. hæstv. stj. að taka upp þá reglu að láta þing sitja 6—8 mán. ársins, í viðbót við alla þá örðugleika, sem þjóðfélagið á nú við að búa. Langt og leiðinlegt þing er ekki aðeins þreytandi fyrir hv. þm., heldur einnig sannkölluð plága fyrir þjóðina. Þess vegna á Alþ. að sitja sem stytztan tíma, og á þeim tíma ársins, sem beztur er fyrir afgreiðslu fjárl. — Ég er því mótfallinn, að hv. Alþ. verði gert að einskonar dýrtíðaruppbót fyrir okkur þm., sem erum svo ólánssamir að hafa verið kosnir til þess að eiga sæti á þingi, sérstaklega ef þinghaldið á að taka meiri hluta ársins.