11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í C-deild Alþingistíðinda. (4988)
171. mál, samkomudagur Alþingis árið 1935
Garðar Þorsteinsson:
Ég vil aðeins taka það fram, að mér finnst engin ástæða til þess að stj. sé að gera sér leik að því að hafa þingtímann lengri en þörf er á. En það er alveg augljóst mál, að þing, sem kemur saman í marz, verður frestað í vor og kemur saman aftur að hausti, hlýtur að standa lengur en eitt samfellt þing myndi gera.
Ég álít, að yfirleitt eigi þingtíminn að miðast við afgreiðslu fjárl. Þetta þing, sem nú situr, hefir haft umfangsmeiri mál með höndum en flest önnur þing, og þó eru horfur á, að afgreiðslu fjárl. gæti orðið lokið 17. des., eða eftir rúml. 2½ mánuð frá þingbyrjun.
Hæstv. forsrh. kom við umr. um þetta mál með þá upptuggu úr Nýja dagbl., að það væri Sjálfstfl., sem tefði þingstörfin. Stjórnarflokkarnir hafa gert talsvert til að reyna að koma þeirri blekkingu inn hjá kjósendum, að þeir vildu halda sér við málefnin og hafa sem stytztan umræðutíma. Í þessu skyni komu þeir í vetur með tilmæli um reglur um ræðutíma og fjölda ræðumanna, sem þeir hafa að vísu ekki minnzt á síðan.
En þegar dæma skal um umr. og umræðutíma á þingi, ber ekki síður á það að líta, hverjir gefa tilefni til umr. en hitt, hverjir halda þeim uppl. Það er alkunnugt, að stj. hóf feril sinn með því að gefa út hver bráðabirgðalögin á fætur öðrum. Með þessi bráðabirgðalög kemur stj. síðan til þingsins til að leita samþykkis þess, og þau voru sannarlega svo úr garði gerð, sum þeirra, að það hefði verið til of mikils mælzt, að við þeim hefði verið þagað. Ein þessara bráðabirgðalaga fengu nú þá útreið, að meiri hl. þings lýsti yfir því, að forsrh. hefði brotið stjskr. með því að ekki hefði verið nægilegt tilefni til útgáfu laganna. Ég held, að það hefði hvergi getað viðgengizt í þingræðislandi, nema hér, að stj. sæti að völdum, eftir að hafa fengið áminningu frá meiri hl. þings fyrir að hafa brotið stjskr. Og sérstaklega er þetta leiðinlegt fyrir stj., sem alltaf er með lýðræðið á vörunum.
Andstæðingar stj. munu ekki þola það þegjandi, að fram séu borin einkasölufrv. í tugatali, sem svipta einstaklinga hundruðum og þúsundum saman atvinnu þeirra. Enda hafa þegar borizt mótmæli gegn þessum fyrirætlunum stj. frá þúsundum mann,. Stj. þarf ekkert að furða sig á því, þó að sjálfsæðismenn taki hanzkann upp fyrir þessa menn. (Fjmrh.: Hvað er þetta annað en málþóf?). Mér er sagt, að á síðasta þingi hafi hæstv. fjmrh. verið einhver allra mesti málþófsmaður, þótt hann hafi hægt um sig nú, af því að hann finnur, að hann er ekki starfi sínu vaxinn, enda mun hann hafa fengið bendingu um það frá flokksbræðrum sínum í fjhn., að bezt myndi vera, að hann hefði sig ekki mikið í frammi. Þessi hæstv. ráðh. hefir borið fram hvert skattafrv. á fætur öðru, án þess að gera nokkru grein fyrir, hvaða tekjur þau myndu gefa, og eitt slíkt síðast í dag.
Stj. má vita, að meðan hún ber fram frv., sem ganga svo mjög á rétt alþýðu manna sem einkasölu- og skattafrv. hennar, mun Sjálfstfl. ekki taka þeim með þögn og þakklæti. Hún þarf ekkert að furða sig á því, þó að þeir, sem unna frelsi og einstaklingsframtaki í landinu, spyrni á móti kúgunartilraunum hennar. Stj., sem lofaði sparnaði, en hefir lagt nýjar milljónabyrðar á skattþegna ríkisins, getur ekki búizt við því, að andstæðingarnir hummi slíkt fram af sér þegjandi.