11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í C-deild Alþingistíðinda. (4992)

171. mál, samkomudagur Alþingis árið 1935

Pétur Halldórsson:

Mér þótti óþarft af hæstv. forsrh. að láta þau orð, er ég sagði hér áðan, ganga svo nærri sér, að gefa þeirra vegna tilefni til allra þeirra umr., sem síðan hafa farið hér fram. En það er ekki í fyrsta sinn sem svipaðar ástæður verða til að lengja hér umr. Og ég vil taka það fram aftur, að aðalatriðið í þessu efni fyrir ríkisstj. og þm. tel ég að eigi að vera það, að hafa þingið stutt næsta ár. Er þarfleysa að hafa þingið lengra en það, sem tekur til endanlegrar afgreiðslu fjárl. Það hefir verið og á að vera reglan um þinghaldið. Það er játað af öllum, að heppilegasti tíminn til samningar fjárl., þannig að líkur séu til, að áætlun standist, sé haustið. Á síðustu árum hefir aukizt þörfin til að vita um afkomu líðandi árs við samningu fjárl. Er því sérstök ástæða til þess nú að hafa þing að hausti. Er ríkari nauðsynin á að gæta þessa atriðis en tillit til þess, á hvaða tímum þm. eiga auðveldast um að mæta á þingi. Þess vegna á aðalreglan að vera sú, að haldin séu haustþing. Eins og hv. 7. landsk. vil ég henda á það atriði, að sérstök hvöt er fyrir þm. að ljúka af þinginu áður en jól fara í hönd. Þetta yrði góð og nauðsynleg hvöt. Finnst mér ískyggilegt þetta frv. um þinghald þegar í byrjun næsta árs, og er engu líkara en þingi sé ætlað að standa nær helming ársins 1935. Er það og þvert á móti vilja þjóðarinnar, að þm. auki að gamni sínu kostnað við þinghald. Þingið á ekki að þurfa að standa miklu lengur en þann tíma, sem það tekur að afgreiða fjárl. En nú er það sérstaklega ískyggilegt, að hæstv. stj. hefir komið upp fjölda stofnana, sem ætlazt er til, að ausi frv. inn á þingið að ári, sem mörg eru til þess líkleg að verða mikil umr.efni, og kynni þá svo að fara, að þingtíminn yrði harla langur, ef taka ætti það allt til fullrar meðferðar. Er þarflaust að miða þingtímann við slík mál, heldur á að miða hann við afgreiðslu fjárl. og halda stutt þing. Hitt gæti tekið meira en helming ársins.

Mér þykir frv. ískyggilegt, og er ég því andvígur, að þing komi saman þegar í marz næstk.

Liggja ekki heldur fyrir þau mál, að þau megi ekki bíða til hausts, eins og fjárl. Legg ég því ríka áherzlu á, að þingið verði ekki haldið í byrjun næsta árs og þingkostnaðurinn þannig tvöfaldaður. Er engin þörf á að lengja þingtímann þannig vegna þessara mála, sem rigna mun yfir þingið, og mega þau vel bíða hentugra tækifæris. Þetta virðist mér vera aðalatriði málsins, og mun ég halda mér að því við atkvgr.