29.11.1934
Sameinað þing: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í D-deild Alþingistíðinda. (5019)

169. mál, ábyrgð á láni fyrir Vestmannaeyjakaupstað

Pétur Magnússon:

Ég er ekki viss um, að rétt sé að setja þetta skilyrði í tillgr. Ég get hugsað mér, að lánveitendur krefjist till. skilyrðislausrar, því að dæmi eru til þess, að slíkum skilyrðum hefir verið mótmælt. Ég er ekki á móti því, að trygging sé sett fyrir láninu, heldur álít ég nægilegt, að ráðh. gefi yfirlýsingu um þetta.