29.11.1934
Sameinað þing: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í D-deild Alþingistíðinda. (5029)
169. mál, ábyrgð á láni fyrir Vestmannaeyjakaupstað
Gísli Sveinsson:
Ég sé engan mun á því í raun og veru, hvort málið er afgr. á þennan hátt eða með orðalaginu: „gegn tryggingum, sem stj. metur gildar“. Ég veit ekki með vissu, hvers vegna var horfið frá því orðalagi í fyrra í 22. gr. fjárl. og sett í stað þess „gegn fullum tryggingum“. Ég gæti þó hugsað mér, að tilætlunin hefði verið að láta stj. hafa aðhald, vegna þess að svo hefði þótt, sem stundum hefði brugðið út af því, að stj. hefði tekið fullar tryggingar. En auðvitað er það stj., sem verður að meta tryggingarnar, hvort orðalagið sem notað er, og gagnvart erlendu lánveitendunum hefir þetta enga þýðingu. En ég vil þó leggja til, að orðalaginu „gegn fullum tryggingum“ sé haldið, því að í því felst nokkurt aðhald, sem ég tel, að ekki muni af veita.