29.11.1934
Sameinað þing: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í D-deild Alþingistíðinda. (5030)
169. mál, ábyrgð á láni fyrir Vestmannaeyjakaupstað
Forseti (JBald):
Mér hefir borizt svo hljóðandi skrifl. brtt. frá hv. þm. Hafnf.: „Tillögugreinina skal orða svo:
Alþingi ályktar að heimila ríkisstj. vegna ríkissjóðs að ábyrgjast, gegn fullum tryggingum, £ 5000 — fimm þúsund sterlingspunda — lán, sem bæjarsjóður Vestmannaeyja hefir fengið loforð fyrir hjá The Pearl Assurance Company Ltd., London“.