11.12.1934
Efri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í D-deild Alþingistíðinda. (5047)

173. mál, vegarstæði um Lágheiði

Flm. (Einar Árnason):

Út af fyrirspurn hv. 1. þm. Reykv. skal ég geta þess, að ég hefi heyrt þetta sama, að það hafi farið þarna um áður einhver maður frá vegamálastjóra einhverntíma. En mér er ekki kunnugt um, að mælingar eða áætlanir hafi verið gerðar um þessa vegarlagningu. Vegurinn er alllangur. fyrst og fremst yfir heiðina, og svo út í Stíflu í Fljótum. Ef svo væri, að þessi athugun hefði áður farið fram, þá er hér náttúrlega ekki um mikið verk að ræða. En mér er ekki kunnugt um, að þetta verk hafi verið unnið til nokkurrar hlítar, og veit ekki, hvort hæstv. stj. getur upplýst það. En það er a. m. k. ekki mikil áhætta að samþ. þessa till. og ætti ekki að spilla neinu. Ef till. verður hinsvegar felld, þá verð ég að líta svo á, að hv. þd. telji óþarft, að verið sé að reka á eftir þessu máli.