17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í D-deild Alþingistíðinda. (5081)
86. mál, Vestmannaeyjavitinn á Stórhöfða
Sigurður Kristjánsson:
Ég vil segja nokkur orð út af því, sem hv. þm. Vestm. sagði viðvíkjandi því, að hann vissi ekki, hvort eins væri ástatt um aðra sjútvnm. og þá 2, sem hér hafa talað, ef taka á það sem töluð orð, sem hv. 3. landsk. sagði hér um þetta mál. Hann talaði hér nokkur miður gáfuleg orð, sem ef til vill hafa átt að gilda sem flutningur hans máls, en þeir, sem setið hafa við fótskarir annara, geta ekki búizt við því, að orð þeirra verði tekin sérlega hátíðlega.
Ég vil lýsa yfir því, að mín skoðun í þessu máli er ekkert breytt. Ég er ekki svo skyni skroppinn, að ég láti mér detta í hug, að þetta verði gert án þess að ætlað sé til þess fé, og ég ætla, að hv. meðnm. mínir, sem ætla að breyta afstöðu sinni til málsins, af því að nú er gerð grein fyrir því, hvernig fjárins er aflað, geri sér þessa fávizku upp. — Mín afstaða til þessa máls er óbreytt.