17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í D-deild Alþingistíðinda. (5087)
86. mál, Vestmannaeyjavitinn á Stórhöfða
Sigurður Einarsson:
Ég er sá eini, sem kvatt hafði mér hljóðs í umr. um þetta mál, en var synjað um orðið. (Forseti: Þeir voru fleiri). Ég vil taka það fram í sambandi við mál þetta, að 76000 kr. eru ætlaðar til nýrra vitabygginga í fjárlfrv. Að mjög vel athuguðu ráði og eftir mjög nákvæma yfirvegun um það, hvernig þessu fé yrði bezt varið, tók meiri hl. fjvn. þá ákvörðun að verja fénu til þess að reisa miðunarstöð í Vestmannaeyjum og radiovita á Reykjanesi, eftir því sem rannsókn leiddi í ljós, að nauðsynlegt væri, og loks til þess að reisa innsiglingarvita á Akranesi.
Að því athuguðu, sem nú var nefnt, og eins hinu, að kunnugt er, að vitamálastjóri hefir ekki lagt kapp á, að aukning á ljósmagni Vestmannaeyjavitans verði framkvæmd á næsta ári, greiði ég atkv. gegn till. þeirri, sem hér liggur fyrir.