17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í D-deild Alþingistíðinda. (5103)

91. mál, miðunarstöð í Vestamannaeyjum

Jakob Möller:

Mér skildist á ummælum hv. þm. Vestm. undir umr. um till. um Stórhöfðavitann, að fyrir lægi umsögn vitamálastjóra um það mál. Ég vil því bera upp þá fyrirspurn til sjútvn., hvort einnig liggi fyrir umsögn vitamálastjóra um þetta mál, eða hvort þessi umsögn grípur ekki yfir þessi mál bæði. Tel ég þá, að fróðlegt væri, eins og hv. þm. Hafnf. vakti athygli á í umr. um Stórhöfðavitann, að d. fengi eitthvað að heyra úr þessari umsögn.