10.12.1934
Sameinað þing: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í D-deild Alþingistíðinda. (5141)

166. mál, verslunarerindrekar í Mið-Evrópu

Ólafur Thors [óyfirl.]:

Ég verð að taka undir það, sem hv. flm. sagði, að það er hin mesta nauðsyn á, að Íslendingar gæti hvarvetna að hagsmunum sínum út á við; því fremur, sem nú þrengir óðum að á öllum sviðum viðskipta og fjármála í heiminum. Um þá sérstöku þörf fyrir erindreka í Mið-Evrópu, sem hér er um að ræða, verð ég að viðurkenna, að hún er ákaflega brýn og aðkallandi. Á undanförnum árum hefir ríkisstj. haft verzlunarerindreka í Þýzkalandi og Póllandi, og jafnvel víðar í Mið-Evrópu, án sérstakrar heimildar frá þinginu, sem unnið hefir að útbreiðslu og sölu á íslenzkum vörum og leyst það af hendi á þann hátt, að allir eru sammála um, að það hafi orðið landsmönnum til mikillar blessunar. Ég skal að vísu viðurkenna, að það er um þetta starf eins og önnur, að gagnsemi þess veltur mjög mikið á því, hvernig það er rækt. En ég vil ekki að óreyndu gera stj. getsakir um, að hún láti undir höfuð leggjast að velja hæfasta manninn, sem kostur er á, til slíks starfs. (MT: Hver er hann?). Það er a. m. k. ekki sá hv. þm., sem greip fram i. Það segi ég af fullri sannfæringu. Ef hv. þm. langar mikið til að vita, hvern ég á við, þá verður hann að fara vel að mér, og kann ég þá að skjóta því að honum áður en umr. er lokið. — Ég vil, sem sagt, ekki gera stj. getsakir um það, að hún velji ekki hæfasta manninn.

Ég geri ráð fyrir, að allir sjávarútvegsmenn séu mjög þakklátir fyrrv. ríkisstj., og þá sérstaklega þeim manni, sem vegna sinna persónulegu hæfileika kom því til leiðar, að svo vel réðist fram úr þessum vandamálum, að greiða fyrir sölu á ísl. sjávarafurðum í Mið-Evrópu. Og ég get sagt það hér á Alþingi, að mig undrar, hvað lítið hefir borið á þakklæti til þessara aðila frá þingsins hálfu. Og ég hefi einnig undrazt, hvernig blöð stj. hafa stundum leyft sér að rita um þennan erindreka stj. í Mið-Evrópu, og farið köldum orðum um árangurinn af starfi hans fyrir afurðasöluna. Þessi maður hefir vissulega átt skilið meira þakklæti frá því opinbera en hann hefir hlotið.

Ég vil mæla með því, að þessi þáltill. verði samþ., og vona, að stj. velji þann manninn, sem hæfastur er til að gegna þessu starfi. Ég fyrir mitt leyti er ekki viss um, að sá maður, sem tekur að sér þetta starf, þurfi endilega að vera bundinn við það allan árshringinn. Ég hygg, að það mætti spara nokkuð útgjöld við starfið, með því að láta manninn dvelja aðeins 4—6 mánuði á ári í þessum löndum. Ég varpa þessu einungis fram, ekki sem boðorði, heldur sem aths. eða bendingu um það hvernig framkvæmdum verði háttað í þessu efni.