07.11.1934
Neðri deild: 30. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í B-deild Alþingistíðinda. (529)
11. mál, einkasala á áfengi
Frsm. minni hl. (Jakob Möller) [óyfirl.]:
Ég geri ráð fyrir, að stjórnarflokkarnir þykist hafa lagt fram ekki sem óverulegast innlegg í þessu máli sínu. Þetta mál hefir verið tekið til meðferðar hér í Nd., og voru lagðar fram skýrslur frá landlækni um rannsóknir á ýmsum matvælategundum, aðallega innlendum. Þessi skýrsla er eitthvert furðulegasta plagg, sem notað hefir verið sem „agitation“. Öll meðferð er svo slæleg og svívirðileg, að það ætti að láta bæði ríkisstjórnina og þá menn, sem standa á bak við þær aðgerðir, sem hér um ræðir, sæta stórum vitum fyrir.
Málið er þannig útbúið, að „áfengisverzlun ríkisins“, sem hefir rekið lítilsháttar efnagerð, hefir ekki getað keppt við þá, sem reka sumskonar iðn í landinu, og hún hefir því séð fram á, að hún yrði að gefast upp fyrir þeim, þrátt fyrir það, að hún notfærði sér aðstöðu sína til þess að hindra, að þessir keppinautar fengju þau efni, sem má telja, að þeim séu nauðsynleg til efnagerðarinnar. Það er ein aðalástæðan, sem færð er fyrir lögleiðingu þessarar einokunar, að fyrirtæki, sem stunda efnagerð, hafi ekki heimild til þess að nota vínanda til þeirrar starfsemi, eða að nauðsynlegt sé að lögleiða einokun til þess að hindra óleyfilega meðferð á vínanda. Þetta fer frv. fram á. Þetta stangast að vísu, en mér skilst, að ekki þurfi sérstakar ráðstafanir til þess að hindra, að fyrirtæki noti vínanda til efnagerðar, því að það er þegar búið að gera það. Það má gera ráð fyrir því, að áfengislöggjöfin breytist innan skamms, og þá hafa allir landsmenn frjálsan aðgang að notkun vínanda. Þess vegna er tilgangslaust að einoka þessa efnagerð til þess að hindra ólöglega meðferð vínanda. Það er því bersýnlegt, að hér liggur annað á bak við.
Eins og ég hefi áður tekið fram, er áfengisverzlunin ekki samkeppnisfær í rekstri efnagerðar. Fyrrv. stj. ákvað því, í samráði við landlækni, að láta framkvæma rannsókn á matvælategundum. Það er bersýnilegt, að þessari rannsókn er stefnt að þessari efnagerð, því að til þess að framkvæma þessa rannsókn er fenginn maður, sem þegar er búinn að fá stöðu hjá efnagerð áfengisverzlunar ríkisins. Blygðunartilfinning þeirra, sem fyrir þessu standa, er ekki mikil, en einn af þeim mönnum er fyrst og fremst landlæknir. Hann fær svo skýrslu frá sérfræðingnum. Þessa skýrslu var mönnum alveg ókunnugt um, þangað til hún var birt í þinginu.
Þá var því slegið föstu, að hér væru framleiddar eitraðar matvælategundir, en jafnhliða því er lýst yfir því af landlækni, æðsta yfirmanni heilbrigðismálanna, að það hafi ekki verið ætlunin að birta þessa skýrslu, ef þess hefði ekki þurft vegna umræðna á Alþingi.
Það, að framleidd eru eitruð matvæli, er í sjálfu sér aukaatriði hjá þessum mönnum, en þegar þetta atriði getur orðið vopn í „pólitískri“ baráttu, þá finnst þessum mönnum sjálfsagt að birta þessa skýrslu.
Ég vil spyrja hv. ríkisstj., hvaða ráðstafanir hún hafi gert viðvíkjandi landlækni út af þessu máli. Því er lýst yfir af honum, að honum sé kunnugt um, að framleidd séu eitruð matvæli, en samt ætli hann ekki að gera neitt frekar í þessu máli. Ríkisstj. skipar rannsókn út af þessu máli, sem eðlilegt er. Þegar fram kemur skýrsla frá landlækni um rannsókn, sem leitt hefir í ljós, að framleiddar væru eitraðar matvörur, þá er ástæða til þess að láta fram fara rannsókn. Og það er meiri ástæða til þess, að fram sé látin fara rannsókn gagnvart landlækni, til þess að upplýst verði, hvers vegna hann hafði í byggju að láta þessar skýrslur liggja í þagnargildi án þess að gera neitt frekara.
Ef þetta er allt tekið alvarlega, þá sé ég ekki, hvernig ríkisstj. getur komizt hjá því að láta landlækni sæta vítum fyrir meðferð hans á málinu. Ég fyrir mitt leyti tel, að þetta muni stafa af því, að ríkisstj. taki þessa rannsókn alls ekki alvarlega.
Annars verð ég að segja, að slík baráttuaðferð af hálfu stjórnarflokks er fyrir neðan allar hellur. Vona ég svo að lokum, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, verði fellt einum rómi hér í hv. deild.