07.11.1934
Neðri deild: 30. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í B-deild Alþingistíðinda. (530)
11. mál, einkasala á áfengi
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:
Ég ætla aðeins að gera nokkrar aths. út af ræðu hv. 3. þm. Reykv. Hann minntist á skýrslu, sem gerð var viðvíkjandi matvælarannsókn í sambandi við þetta mál. Þessi skýrsla kom ekki til umr. hér í þessari hv. deild við meðferð málsins, en hafði komið fram við meðferð málsins í Ed. Ennfremur hafa verið blaðaumræður út af þessari skýrslu, sem hv. 3. þm. Reykv. talaði um. Þessi skýrsla var hirt þá fyrst í þessari hv. deild, þegar umr. hófust við meðferð málsins hér. Ástæðan fyrir því, að þessi skýrsla var gefin er sú, að yfirmaður heilbrigðismálanna, landlæknir, varð var við, að haldið var fram kenningu, í sambandi við frv., um það, að grundvöllurinn, sem það byggist á, væri rangur. Því var haldið fram, að hægt væri að framleiða þessar vörur, sem áfengisverzlunin á að fá einkarétt á að framleiða, án þess að nota spíritus. En eins og menn vita, er ástæða til þess að láta þessar vörutegundir falla undir áfengisverzlunina. Það er ekki hægt að búa til þessar vörur án þess að nota spíritus. Í tilefni af því, að hörð ummæli hafa komið fram um þetta atriði, og það frá einni efnagerðinni hér í Rvík, að ekki sé hægt að framleiða þessar umræddu vörutegundir án spíritus, birti landlæknir hluta af skýrslu sinni. Ég vil lesa upp nokkur atriði úr skýrslu þessari, til þess að skýra fyrir hv. þdm., hvað það var, sem frv. fór fram á, sem sé, að ekki væri unnt að framleiða þessa vöru án spíritus. Ég ætla að lesa það upp, sem aðallega snertir bökunardropa. Um rannsókn á þeim, segir svo meðal annars:
..... Til rannsóknar voru 5 mismunandi tegundir bökunardropa, 2 tegundir af vanillindropum, 1 tegund af ananasdropum, 2 tegundir af rommdropum, 2 tegundir af sítróndropum og 2 tegundir af möndludropum.
a. Vanillindropar.
Til rannsóknar voru 2 tegundir af vanillindropum, nr. 21-23 og nr. 46-48.
Í þessum vanillindropum fundust:
í nr. 21-23: 1,08 gr. vanillin í 100 ccm. í nr. 46-48: 1,15 g. vanillin í 100 ccm.
Til samanburðar má geta þess, að í vanillindropum, sem áfengisverzlun ríkisins framleiðir. eru 5 g. vanillin í 100 ccm., og þar sem það er einungis vanillinið, sem gefur dropunum ilm og bragð, þá eru dropar áfengisverzlunarinnar um það bil fimm sinnum sterkari en þeir sem rannsakaðir voru“.
Næst kemur sá kafli, sem snertir sérstaklega þann grundvöll frv., að notaður hafi verið spíritus við framleiðsluna. Þar segir svo:
..... Í dropunum, sem rannsakaðir voru, var vanillinið uppleyst í glycerini, þynntu með vatni og lituðu með sykurlit. Vegna þess, hve sýnishornin voru lítil, var ekki hægt að ákveða magn glycerínsins áreiðanlega. Sé glyceríns neytt aðeins í litlum skammti, eins og á sér stað, þegar bökunardroparnir eru notaðir í kökur, þá mun ekki vera hægt að telja það hættulegt. En við 290° C, og jafnvel neðar, myndast úr glyceríninu acrolein, og þar sem acroleinið veldur eymslum og bólgu í húðinni og slímhúðinni og minnsti vottur þess er eitraður, verður að teljast mjög óheppilegt og hættulegt að nota í bökunardropa glycerin, því að sjaldan mun vera bakað fyrir neðan 290° C.
Ef nánari rannsókn leiddi í ljós, að þessi glycerinupplausn væri engin tilviljun, heldur alltaf notuð, mundi vera þörf að banna þvílíka framleiðslu“.
Þetta, sem ég las nú upp, sýnir greinilega fram á, að það er rangt, sem haldið hefir verið fram, að ekki þurfi að nota spíritus við framleiðslu bökunardropa. Það er aðeins talað um þetta efni, acrolein, sem geti myndazt, ef glycerin er notað. Fullyrðingar hv. 3. þm. Reykv. um það, að landlæknir sé sekur fyrir það, að hafa ekki stöðvað strax þessa framleiðslu, þegar hann var orðinn var við hana, á ekki við nein rök að styðjast, vegna þess, að hér er talað um, að þetta sé óheppilegt og geti verið hættulegt, en því er slegið föstu, að þetta þurfi ekki að valda tjóni. Hinsvegar er ekki hættulaust að nota þessi efni, sem hér er um að ræða, vilji menn fá góða vöru. Það getur verið, að þetta sé hættulegra en talað er um í skýrslunni, en þessi rök eru þó byggð á þeim grundvelli, að komið sé í veg fyrir það í framtíðinni, að vörur séu framleiddar úr svo lélegum efnum sem hér um ræðir. Ég get því ekki séð, að neitt hafi komið fram, sem geti sýnt fram á, að landlæknir hafi reynzt sekur um þá vanrækslu að hafa ekki stöðvað framleiðsluna strax.
Ennfremur segir svo í skýrslunni, út af þessum umr., sem urðu hér í hv. deild:
..... Einn ræðumaður virðist hafa haft það eftir einni efnagerðinni, að til framleiðslunnar væri alls ekki notaður spíritus (og er sennilega átt við æthylalkóhól). Þetta út af fyrir sig eru mjög ískyggilegar upplýsingar, og því fremur, sem þær munu vera sannar. Dr. Jón Vestdal hefir tjáð mér, að við rannsókn á innlendu hárvatni hafi það reynzt vera gert úr propylalkóhóli. En hann telur vafasamt, að propylalkóhól sé til slíks nothæft og muni það fremur verða að teljast alls ónothæft. Af rannsóknum hans á bökunardropum er það nægilega upplýst, að önnur uppleysingarefni en venjulegur vínandi geta verið hættuleg, og alltaf síðri, með því að vínandinn gufar burtu við allan bakstur.“
Ég geri nú ráð fyrir, að mönnum þyki þetta nægilegar upplýsingar til sönnunar því, að það sé á rökum byggt, að leggja þessa framleiðslu undir áfengisverzlun ríkisins, þar sem sannað er, að framleiðsla þessi getur ekki orðið sæmileg eða jafnvel ósaknæm án þess að nota í hana spíritus. En hinsvegar myndi það verða mjög óheppilegt að láta hina einstöku framleiðendur fá vínanda í þessu skyni, þar sem það myndi torvelda svo stórkostlega eftirlit hins opinbera með meðferð iðnaðarspírituss. Og það er einmitt fyrst og fremst af þessum ástæðum, að frv. þetta er borið fram.
Hv. 3. þm. Reykv. gerði mikið veður út af því, að rannsókn hefði verið ódrengileg í garð einnar efnagerðar hér í bænum, en færði þó engin önnur rök að þessu en þau, að maður sá, er framkvæmdi rannsóknina, hefði starf hjá áfengisverzlun ríkisins. Ég skal nú ekkert um það segja, hvernig valið á þessum manni er til komið, en hitt er kunnugt, að rannsóknin var framkvæmd að tilhlutun fyrrv. heilbrigðismálaráðh., Magnúsar Guðmundssonar. Ef hv. 3. þm. Reykv. vill beita illyrðum út af rannsókninni, ætti hann því fyrst og fremst að snúa sér þangað.
Annars skiptir það vitanlega engu máli, hvort maður sá, er rannsókn þessa hafði með höndum, vinnur hjá áfengisverzlun ríkisins eða ekki, heldur hitt, að hann er sérfræðingur og að ekkert hefir komið fram, sem hnekkt hefir neinu í skýrslu hans. Þess vegna er með öllu ómaklegt og ástæðulaust að vera að reyna að vekja tortryggni í hans gerð, þótt hann hafi gefið því opinbera skýrslu sem sérfræðingur.
Hv. 3. þm. Reykv. hélt því fram, að landlæknir væri stórsekur, þar sem hann hefði ekki bannað bökunardropana þegar í stað. Ég hefi nú lesið upp kafla úr bréfi landlæknis til fjhn., þar sem hann tekur skýrt fram, að þessi varningur sé ekki markaðshæfur, og því sé nauðsynlegt, að skýrslan um rannsóknina komi þegar fram við umr. þessa frv., sem hér liggur fyrir. Sýnir það, að landlæknir hefir haft vakandi augu fyrir þeirri nauðsyn, að framleiðslu þessari verði sem fyrst breytt í betra og öruggara horf, og eins og þegar hefir verið sýnt fram á, verður það ekki gert á annan hátt en þann, að áfengisverzlun ríkisins fái á henni einkarekstur.