07.11.1934
Neðri deild: 30. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 531 í B-deild Alþingistíðinda. (532)
11. mál, einkasala á áfengi
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:
Hv. 3. þm. Reykv. segir, að þar sem nú sé fyrir dyrum að breyta áfengislögunum, þá sé sú ástæða fyrir frv. fallin niður, að það torveldi eftirlit með notkun iðnaðarspírituss, að láta þau einkafyrirtæki, sem framleiða þær vörur, er frv. fjallar um, fá spíritus til framleiðslunnar framvegis. Þetta er vitanlega með öllu rangt, því að þótt svo færi, að sú áfengislöggjöf, sem nú gildir, yrði afnumin, þá myndi það leiða til stórum torveldara eftirlits, að öll þessi fyrirtæki hefðu drykkjarhæfan spíritus með höndum. Það má vera, að hv. 3. þm. Reykv. telji það ekki nægilega ástæðu fyrir frv., að það eigi að koma í veg fyrir misnotkun áfengis í landinu, sem gæti orðið allveruleg, eða þann kostnað, er ríkið myndi hafa af því að reyna að hindra slíka misnotkun, en ég álít þetta nægilega ástæðu, og því er frv. komið fram.
Út af því, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði um yfirlýsingu dr. Jóns Vestdals um bökunardropana frá efnagerðinni „Ljómi“, vil ég taka það fram, að ég hefi ekki séð þessu yfirlýsingu, en vil þó ekki rengja, að hún hafi verið gefin. En ég vil benda á það, að í skýrslu, sem gefin er til Alþingis og landlæknir ber ábyrgð á, er sagt, að önnur upplausnarefni en spíritus geti verið hættuleg og séu jafnan síðri. Þessa yfirlýsingu tel ég nægilega til að leggja framleiðslu þeirra vara, sem um er að ræða, undir áfengisverzlun ríkisins, þar sem stj. vill ekki láta hvern sem er hafa spíritus til framleiðslunnar.
Þá endurtók hv. 3. þm. Reykv. þá staðhæfingu sína, að landlæknir hefði ætlað að leyna rannsókninni. Þetta er auðvitað ekkert annað en fjarstæða. Tilætlunin var að bíða árangursins af matvælarannsóknunum í heild, en skýrsla um nokkurn hluta rannsóknanna var birt fyrr en annars hefði verið gert vegna fjarstæðra ummæla hv. 3. þm. Reykv. hér í deildinni í sambandi við þetta frv. Landlækni var kunnugt um það, að stjfrv. lá fyrir um að leggja framleiðslu á vissum iðnvörum undir áfengisverzlun ríkisins, vegna þess hve vörur þessar höfðu reynzt lélegar hjá einkafyrirtækjunum. Það var því engin ástæða fyrir landlækni að fara að gefa sérstakar upplýsingar um þessar vörur í pólitískum tilgangi. En hann mun ekki hafa getað orða bundizt, er honum varð kunnug röksemdafærsla hv. 3. þm. Reykv. í sambandi við þetta frv.