07.11.1934
Neðri deild: 30. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 531 í B-deild Alþingistíðinda. (533)
11. mál, einkasala á áfengi
Stefán Jóh. Stefánsson [óyfirl.]:
Ég vil víkja hér nokkuð að þeim ummælum, sem hv. 3. þm. Reykv. lét sér sæma að hafa um landlækni út af rannsóknum þeim, sem hann hefir látið framkvæma á nokkrum matvörutegundum og iðnvörum. Mér gat ekki betur skilizt á hv. 3. þm. Reykv. en að framkoma landlæknis í þessu efni hefði verið slík, að hans dómi, að um fulla afsetningarsök væri að ræða, enda talaði hv. þm. um blygðunarleysi landlæknis í þessu sambandi. En öll þessi stóryrði eru ekkert nema vindhögg, sem stafa af reiði hv. 3. þm. Reykv. yfir því, að landlæknir hefir með skýrslu þeirri um rannsóknirnar, sem Alþingi hefir verið send, hrakið þau ummæli, sem þessi hv. þm. hafði hér eftir einni efnagerð í bænum, að hinar umræddu iðnvörur stæðu samskonar erlendum vörum fullkomlega á sporði. Þegar landlækni bárust til eyrna þessar staðlausu fullyrðingar, taldi hann það skyldu sína að birta Alþingi það, sem þá var komið fram við rannsóknina, og fór mjög í bága við það, sem hv. 3. þm. Reykv. hafði haldið fram. Þessi framkoma landlæknis var því ekki aðeins afsakanleg, heldur sjálfsögð.
Þá fann hv. 3. þm. Reykv. landlækni það mjög til foráttu, og vildi enda telja það til glæpsamlegs athæfis, að hann hefði ekki þegar bannað eina tegund af bökunardropum, sem glycerin er notað í, en það getur breytzt í eiturefni við ákveðið hitastig. En hv. þm. gleymir því, að það er allt annað, hvort efni telst eitrað eða hvort það er banvænt. Í fjölmörgun vörutegundum eru eiturefni, en í svo litlum mæli, að þau gera mannlegum líkama ekkert til. Það mun engin ástæða til að ætla, að þessir bökunardropar séu banvænir, þótt þeir „teoretiskt“ geti talizt eitraðir og ef til vill óheppilegir. Það er og auðséð af bréfi landlæknis, að hann hefir ekki talið, að hér væri um bráða hættu að ræða, heldur var á þetta bent, ásamt öðru, til að sýna, að íslenzkur iðnaður er um vöruvöndun ekki kominn á æskilegt stig ennþá. En það er áreiðanlega bezt fyrir þjóðina og framleiðendurna sjálfa, að sem fyrst sé hindraður tilbúningur og sala á sviknum íslenzkum iðnvörum. Þeir, sem að rannsókninni hafa staðið, eiga því skilið lof fyrir það, en ekki last. Það skiptir ekki miklu máli, hvort skýrslan birtist 1-2 mánuðum fyrr eða síðar. Aðalatriðið er það, að rannsóknirnar eiga að vera grundvöllur að nýrri löggjöf um bætt eftirlit með matvælaverzlun og iðnrekstri. Og þeim tilgangi munu þær ná innan skamms tíma að öllu forfallalausu.
Ég verð að segja það, að mér þótti ummæli hv. 3. þm. Reykv. um landlækni sem embættismann koma úr hörðustu átt. Það er dálítið óviðfelldið, að einhver langhæfasti og samvizkusamasti embættismaður landsins skuli verða fyrir slíkum árásum af hálfu þess hv. þm.