19.10.1934
Neðri deild: 14. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í B-deild Alþingistíðinda. (596)

8. mál, tekju- og eignarskattsauki

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þessu frv. er skotið til þessarar hv. d. aftur aðeins vegna leiðréttingar, sem gerð var í hv. Ed. á prentvillu í frv. Eins og menn sjá, stóð í upphaflega frv. í 1. gr. „tekjuskatt“, en átti að vera: tekju- og eignarskatt. - Þetta hefir verið leiðrétt í hv. Ed., og vænti ég, að þessi hv. d. geti fallizt á þá leiðréttingu.