17.10.1934
Neðri deild: 12. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 555 í B-deild Alþingistíðinda. (648)
23. mál, tilbúinn áburður
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:
Ég skal vera stuttorður, en vil aðeins benda á röksemdafærslu hv. þm. V.-Húnv. Hann segir, að fyrrv. landbrh. hafi ekki haft það á sínu valdi að ákveða álagningu einkasölunnar, heldur hafi Sambandið ákveðið það. Ég hefi l. hér fyrir framan mig, og má þar sjá, að það er ótvírætt, að það er stj., sem ræður þessu, eða m. ö. o. sá ráðh., sem ég minntist á. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta;
„Árin 1932, 1933 og 1934 er ríkisstj. heimilt að greiða úr ríkissjóði þann kostnað, sem af því leiðir að flytja tilbúinn áburð bæði frá útlöndum og milli og til allra þeirra hafna, sem skip Eimskipafélags Íslands og strandferðaskip ríkisins koma á“.
Ég vona, að hv. þm. geti nú séð, að það er alveg skýlaust, að þetta vald er allt í höndum ráðh., en ekki Sambandsins, eins og hann vildi vera láta. Sambandið hefir aðeins haft það á hendi að framkvæma l. á þann hátt, sem stj. segir fyrir. (HannJ: Er álagningin meiri árið 1933?). Það hefir aldrei verið greiddur eins lítill styrkur til áburðarverzlunarinnar eins og einmitt árið 1933, þegar þessi mikli „bændavinur“ var landbrh., og hæstv. forsrh. gaf þær upplýsingar, að hann hafi haft heimild til að greiða 90 þús., en aðeins greitt 42 þús. Hvað vill hann þá vera að telja mönnum trú um, að hann vilji aukið framlag. Slík till. er flutt aðeins til þess að geta sagt, að hún hafi verið drepin.
Ég vil benda honum á það, að þó að samþ. yrði að binda framlagið við 40 þús. þá eru líkur til, að framlagið verði hærra á hvert tonn heldur en Þorsteinn Briem lagði fram á hvert tonn, því að það eru því miður ekki líkur til, að fluttur verði eins mikill áburður til landsins nú eins og árið 1933, svo að þó að þessi voðalega till. yrði nú samþ., þá eru samt líkur til, að styrkurinn yrði hærri en þessi fyrrv. ráðh. Bændafl. treysti sér til að greiða, þó að hann hefði heimild til að leggja fram 90 þús.
Ég deili ekki um það við hv. þm., hvort ég sé sósíalisti. Ég geri ráð fyrir, að það komi glöggt fram af afstöðu minni til mála hér á þingi, hvaða flokki ég til heyri. Ef hann heldur, að hægt sé að sjá, hvort ég sé sósíalisti, af því hvort ég vil hafa framlagið til áburðarkaupa 2 þús. kr. meira eða minna, þá skjátlast honum, því að það hefir aldrei staðið á stefnuskrá sósíalista, að áburðarverzlunin ætti að fá 40 þús. kr. styrk, en ekki 42 þús. Hann þyrfti því að kynna sér betur stefnuskrá þess flokks.