17.10.1934
Neðri deild: 12. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 560 í B-deild Alþingistíðinda. (652)

23. mál, tilbúinn áburður

Pétur Ottesen [óyfirl.]:

Ég skal ekki blanda mér mikið í þessar umr., en ég verð að segja það, að það fer að verða vandlifað fyrir andstæðinga stj., ef ráðh. ætla að taka sér, auk þess að túlka eigin skoðanir, einkaleyfi til þess að túlka skoðanir okkar andstæðinganna. -Hæstv. ráðh. segir nú, að um uppgjöf sé að ræða hjá okkur. Fer hér sem jafnan, að þótt þessir menn reiði hátt til höggs, hitta þeir sjaldan naglann á höfuðið. Og sem betur fer, kann landslýður allur að meta þessa menn og tekur þá eins og þeir eru.

Ég fæ ekki séð, að það komi mikið málinu við, hvernig framkvæmdin í því hefir verið, ég sé ekki betur en að Alþingi eigi að láta uppi vilja sinn um það, hvernig það vill láta hafa þetta. Mér sýnist því þeim tíma illa varið, sem varið hefir verið í að deila um þetta fram og aftur, og hæstv. fjmrh. átti sinn drjúga þátt í því að beina umr. í þessa átt.

Styrkur sá, sem bændum er ætlaður skv. frv., er skorinn niður um allt að því helming frá því, sem verið hefir undanfarið, þegar frá er tekið árið 1933. Vil ég benda á það, til þess að gera grein fyrir afstöðu minni í málinu, að áburðarhirðing í votviðrahéruðum landsins kemur ekki að notum, nema þar sem eru haughús og safnþrær. En haughús og safnþrær kosta mikið fé, svo að þrátt fyrir þann styrk, sem veittur er til þessara framkvæmda, er fjölda manna það um megn að bæta úr þessum þörfum, enda auk þess, sem menn þurfa að sinna þessum þörfum, óhjákvæmilegt að leggja í aðrar dýrar framkvæmdir, sem ómögulegt er að slá á frest. Nú er það svo, að ræktunin hefir aukizt hraðar en skilyrðin til að hagnýta áburðinn til hagsbóta fyrir ræktunina, og af því leiðir, að óhjákvæmilegt hefir verið fyrir íslenzkan landbúnað að flytja mikið inn af útlendum áburði. Auk þess er svo komið, að landbúskapur er dauðadæmdur, nema hægt sé að byggja hann á véltæku landi, en til þess þarf að rækta og slétta, því að hér hagar óvíða svo til, að hægt sé að beita vél á landið eins og það er frá náttúrunnar hendi. Ef farið verður nú að draga úr þeim stuðningi, sem bændum er veittur til áburðarkaupa, kemur það til með að ganga út yfir ræktunina, meðan ekki verður úr bætt með betri hagnýtingu áburðarins, en bændur leggja nú allt bolmagn sitt í að leysa þetta, til þess að losa sig við þann þungbæra bagga, að þurfa að verja miklum hluta af hinu lága verði afurðanna til áburðarkaupa. Án þess að loka augunum fyrir erfiðleikum ríkissjóðs, því að ég virði hvern þann mann, sem ber fram till. til útgjaldalækkunar af heilum hug og alvöru, held ég, að það borgi sig ekki fyrir Alþingi að draga að sér hendina með styrk til áburðarkaupa eins og sakir standa.

Hv. þm. V.-Húnv. gerir till. um það, að leggja megi á áburðinn allt að 3%, en að allur annar kostnaðurinn við framkvæmd 1. greiðist úr ríkissjóði. Í till. n. er styrkurinn fastbundinn við 20 kr. tonnið, en undanfarið hefir hann þó ávallt, nema árið 1933, farið fram úr 30 kr. Sjá menn, að hér er ekki um litla lækkun að ræða á þessum nauðsynlega styrk. Hv. 2. þm. Reykv. gengur þó enn lengra í sínum till., því að hann vill binda þetta í hinn endann líka og ákveða, að heildartillagið megi ekki fara fram úr 40 þús. kr., sem er helmingi minna en þegar mest var greitt. - Ég skal ekki dylja það, að ég vil styðja till. hv. þm. V.-Húnv., sem felur það í sér, að heimild stj. til að veita bændum þennan stuðning verður ekki skert frá því, sem er í gildandi lögum. Það getur komið fyrir, að grípa verði til niðurfærzlu á útgjöldum ríkissjóðs, og í því nauðungartilfelli vil ég ekki undanskilja, að það verði að ganga út yfir þetta líka. Ég vil með mínu atkv. stuðla að því, að þessi stuðningur sé ekki skertur, og stj. fari þá eftir því, sem í lagabókstafnum stendur í þessu efni, með þeirri undantekningu, sem ég gat um áðan. Þetta er mín afstaða til málsins, og við hana stend ég, hvernig sem það verður lagt út fyrir mér. Við bændur vitum manna bezt, hvar skórinn kreppir að í þessu efni. Við vitum það betur en þeir menn, sem hér búa, og betur en hæstv. ráðh., sem búa í því mikla sólarljósi, þegar gerður er samanburður á tekjum þeirra og svo kjörum íslenzkra bænda. Við vitum það í krafti reynslunnar og raunveruleikans, þó að ég efist ekki um þeirra góða vilja til þess að setja sig í þær kringumstæður, sem fyrir hendi eru.

Út af þeirri till., sem hér kom fram frá hv. 6. þm. Reykv. og hv. 11. landsk., vil ég segja það, að eftir því, sem þetta mál horfir við frá mínu sjónarmiði, þá álít ég nauðsynlegt að greiða þennan styrk á meðan við erum þess ekki umkomnir að geta hagnýtt okkur betur innlendan áburð, svo að við getum fullnægt þörf okkar í því efni, eða m. ö. o., að hér komi upp áburðarvinnsla, sem gæti létt okkur áburðarkaup, samankomið við að kaupa hann frá útlöndum. Ég vona nú, og ég hefi þá trú á íslenzkum landbúnaði, þrátt fyrir þá erfiðleika, sem nú steðja að honum, að úr þessu rætist hjá okkur og að við getum, áður en langt um líður, losað okkur við hin þungbæru áburðarkaup frá útlöndum. Og þar sem hér er eingöngu um tímaspursmál að ræða, sem líka styðst við þá hugmynd, sem kemur fram nú hjá hv. landbn., þar sem hún leggur til, að l. standi ekki lengur en til 1937, þá held ég, með tilliti til þess, að ekki taki að fara að breyta þessu fyrirkomulagi á áburðarverzlun, sem hefir verið, og það því fremur, sem það kemur fram hjá hv. þm., að framkvæmd á þessu hefi tekizt skaplega í höndum Árna Eylands ráðunautar.

Það felst ekki í þessu hjá mér nein yfirlýsing um það, að ég telji, að það hafi verið hagur fyrir bændur að hafa einkasölu á áburði. Það er nú svo, að við höfum ekkert til samanburðar í þessum efnum, af því að á þessum tíma hefir engin verzlun með áburð í frjálsri samkeppni verið hér.

Ég mun því greiða atkv. á móti síðastnefndri till., af því að ég vona, að þess verði ekki langt að bíða, að við getum losað okkur við áburðarkaup frá útlöndum, en viðurkenni þó, að í henni felst svipaður styrkur til bænda til áburðarkaupa eins og í gildandi löggjöf, ef hún er framkvæmd eins og hún er, en því hygg ég helzt til leiðar komið með till. hv. þm. V.-Húnv., og mun því greiða atkv. með henni.