17.10.1934
Neðri deild: 12. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í B-deild Alþingistíðinda. (668)
23. mál, tilbúinn áburður
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson)[óyfirl.]:
Ég vil láta nægja að taka fram út af ummælum hv. þm. G.-K., þar sem hann taldi mig hafa farið rangt með ummæli frsm. Sjálfstfl., að ég hefi að vísu ekki hér við hendina ræðu hv.1. þm. Reykv. flutta við það tækifæri, sem hér ræðir um, en ég er viss um, að þetta kom svo greinilega fram hjá honum, og síðan hjá mér og þá engin aths. gerð við það, að hver einasti þdm., sem hefir veitt þessu nokkra athygli, hlýtur að muna þetta. Og ég vænti, að mér gefist tækifæri til að sanna mál mitt með því að grípa til heimildanna. Ég hafði lesið þskj., sem hv. þm. las upp úr, en gat ekki fallizt á, að það væri sönnun í þessu máli, því að þegar flokkurinn sá, að hin fyrri ummæli voru ekki heppileg, greip hann til þess að milda þau á þann hátt, að setja „ef ómögulegt þá“ o. s. frv. En ég held, að þetta „ef“ hafi vantað hjá hv. 1. þm. Reykv. í hans ræðu. Ég get verið sammála hv. þm. G.-K. um það, að hin fyrri ummæli voru ekki heppileg og það veitti ekki af að breyta þeim.