14.11.1935
Neðri deild: 36. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (704)
21. mál, heimild rannsóknarstofnana ríkisins til lyfjasölu
Thor Thors:
Þetta mál hefir verið fyrir allshn., og hefir n. orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. Ég skal geta þess, að fram hafa komið mótmæli gegn þessu frv. frá Lyfsalafélaginu hér í bænum. En ég tel svo rökfast það svar við þeim mótmælum, sem kom frá forstöðumanni rannsóknarstofu háskólans, að augljóst sé, að rannsóknarstofan eigi að fá þennan rétt. Tel ég eðlilegt, að sú stofnun standi í beinu sambandi við bændur, er nota þau lyf, er rannsóknarstofan býr til, og megi það verða til þess, að betri vitneskja fáist um árangur af þessum lyfjum.