08.10.1934
Efri deild: 5. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (708)
27. mál, sláturfjárafurðir
Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl]:
Frv. þetta, sem hér liggur fyrir til 1. umr., mun hv. d. allmikið kunnugt áður. Fyrir liggja shlj. bráðabirgðalög, sem nú hafa verið framkvæmd um nokkurn tíma og mikið um rætt á málfundum og í blöðum. Ástæðurnar til þessarar lagasetningar eru sem kunnugt er þær, að framboð kjöts á innanlandsmarkaðinum hefir verið meira en eftirspurnin, vegna takmarkana á erlenda markaðinum. Við höfum þar sömu sögu að segja og margar aðrar þjóðir, og því ekki nema eðlilegt, að einnig hér verði að grípa til svipaðra ráðstafana og þar hafa nú þegar verið gerðar. Mál þetta hefir mikið verið rætt áður en l. voru sett. Fyrst mun það hafa verið tekið til rækilegrar meðferðar á fundi kaupfélagsstjóranna í marzmánuði árið 1933. Þar var grundvöllur þessarar löggjafar lagður og samið frv., sem að efni til er mjög líkt því frv., sem hér er borið fram. Á aukaþinginu 1933 var samþ. þál. um skipun n. til þess að rannsaka afurðasöluna yfirleitt. Þessi n. var skipuð 7. apr. þ. á., og hélt hún þegar fund um málið, en tók ekki verulega til starfa fyrr en eftir síðustu kosningar. Svo sem hv. dm. er kunnugt, voru skipaðir í þessa n. þeir Egill Thorarensen, Guðmundur Jónsson. Hannes Jónsson, Helgi Bergs, Ingimar Jónsson, Jón Árnason og Magnús Þorláksson. N. þessi skilaði áliti 2. ág., og voru nm. á eitt sáttir um nauðsyn þeirra l., sem hér hafa verið sett. En fram kom í n. ágreiningur um það, hvernig verðlagsn. skyldi skipuð, en ég sé ekki ástæðu til að fara út í þann ágreining hér við þessu umr. Í þessu nál. er einróma ósk nm. til stj. um að setja bráðabirgðal. um kjötsöluna þá þegar. Nokkrum dögum síðar voru 1. svo sett, hlutu staðfestingu 9. ág. og voru tekin til framkvæmdar skömmu síðar.
Ég sé ekki ástæðu til þess að fara mörgum orðum um l. í heild sinni. Þau lögfesta skipun 5 manna n., sem á að ákveða verðlag á kjöti á innanlandsmarkaðinum, og skipta landinu niður í verðlagssvæði. Það var gert með reglugerð, skömmu eftir að 1. gengu í gildi. Ennfremur heimila l., að taka megi sérstakt gjald af kjöti á innanlandsmarkaðinum, allt að 8 au. af kg., sem nota á til þess að bæta upp verðlagið á því kjöti, sem selt er á erlenda markaðinum. Í þetta skipti var gjaldið ákveðið 6 au. á kg. - N. hefir síðan ákveðið verðlagið og auglýst það í blöðum jafnótt, og sé ég því ekki ástæðu til þess að tala um það hér. En ég hafði ætlað mér að fara nokkrum orðum um nauðsyn þessara 1. Ég hefi aflað mér upplýsinga um kjötverð nokkur undanfarin ár hjá Sláturfélagi Suðurlands, og hefir verðið á 1. flokks dilkakjöti í heildsölu verið sem hér segir:
Árið
1927
kr. 1.20 kg.
-
1928
- 1.20 -
-
1929
- 1.20 -
-
1930
- 1.20 -
-
1931
- 0.95 -
-
1932
- 0.70 -
-
1933
- 0.90 -
Og nú hefir verðið verið ákveðið 1.15 kr. á kg., eins og hv. d. mun kunnugt. Af þessari skýrslu er augljóst, hvernig áhrifa erlenda markaðsins gætir á þann innlenda. Þegar erlendi markaðurinn þrengist til muna, árið 1931, fellur kjötið niður í 95 au., og 1932 niður í 70 au. Árið 1933 var verðlagið ákveðið 90 au., en það ber þó að athuga, að talsvert af kjötinu var selt utan við þau samtök, sem ákváðu þetta verðlag. Þegar eftir að erlendi markaðurinn fór að þrengjast, jókst um allan helming framboð á kjöti til kaupstaðanna, og kvað svo ramt að, að bændur norðan úr Vatnsdal ráku fé til Rvíkur. Þetta varð óviðráðanlegra með ári hverju, og má geta þess, að nú í ár hefir eftirspurnin eftir spaðsaltkjötinu verið meiri en áður, og það þrátt fyrir von framleiðenda um verðuppbót á útfluttu kjöti. Þetta m. a. sýnir það glögg, að hér hefðu orðið mestu vandræði, ef ráðstafanir þessar hefðu ekki verið gerðar í ár.
Viðvíkjandi verðlaginu vil ég benda hv. d. á það, að á árunum 1927-1930, að báðum árum meðtöldum, var heildsöluverð hér 1.20, og þó var kostnaður við söluna allt að því helmingi hærri en hann er ákveðinn af n. nú.
Að svo mæltu sé ég ekki ástæðu til að fylgja frv. með fleiri orðum, en óska eftir, að því verði vísað til 2. umr. og landbn. að aflokinni þessari umr.