08.10.1934
Efri deild: 5. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 607 í B-deild Alþingistíðinda. (725)
27. mál, sláturfjárafurðir
Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:
Ég get vel skilið, að sjálfstæðismönnum hér á þingi sé lítið um það gefið, að bent sé á það, hversu aðalmálgagn þeirra og forustumenn hér í bænum hafa af öllum mætti reynt að spilla fyrir kjötsölu bænda í haust. En þetta er samt sem áður staðreynd, sem þeir komast ekki í kringum héðan af, hversu fegnir sem þeir vildu. Í Morgunblaðinu hafa þannig birzt tveir leiðarar, þar sem ráðizt er heiftarlega á kjötsölulögin, auk annara skoplegri „agitationa“, svo sem viðtalsins við ónefndan forstjóra, sem ekki hafði smakkað kjöt í 16 ár, og gleðilátanna út af hvalrekanum í Fossvogi. Í grein um þetta dásamlega hvalkjöt var því haldið fram, að Norðmenn litu ekki við öðru kjöti, þegar hvalkjöt væri fáanlegt, enda hefði hvalkjötið útrýmt íslenzka kjötinu í Noregi. Það er vissulega skiljanlegt, að sjálfstæðismenn hér á þingi kveinki sér við að játa opinberlega velþóknun sína á slíkum málaflutningi.
Hv. 1. þm. Skagf. var að tala um hroka hjá mér í sambandi við það, að ég lét í ljós, að ég hefði heldur óskað eftir stuðningi flokksins og blaða hans við málið, meðan það þurfti á mestum stuðningi að halda en þeim stuðningi, er tveim þm. hafa nú lýst yfir við málið hér í deildinni, þótt þær yfirlýsingar séu að vísu allrar virðingar verðar. Sá stuðningur hefði komið framkvæmd málsins að meira gagni, hefði hann komið fyrr í ljós af hálfu forustumanna flokksins og blaða hans.
Hv. 10. landsk. sagði, að bændur hefðu ekki lögbundinn meiri hluta í kjötsölunefndinni, og kvaðst ekki geta skilið þann hugsunarhátt hjá mér, að það kæmi í sama stað niður, hvort þeim málum væri skipað eins og nú er, eða á þann hátt, sem hann óskar. En ég benti á það, að ef Alþingi væri á annað borð þannig skipað, að það væri andstætt framleiðendum, þá er því alveg eins innan handar að breyta lögunum eins og stjórninni að skipa formann, sem spilli framkvæmd laganna. Þetta er að vísu ekki alveg sama í lögfræðilegum skilningi, en allt þrátt um þetta er deila um keisarans skegg. Hv. 10. landsk. sagði, að ég hefði sagt, að Búnaðarfélag Íslands væri ekki verzlunarfélag og því ekki ástæða til þess að það fengi fulltrúa í nefndina. Nú stóð svo á, að ekki var hægt að komast hjá því, að eitthvert hinna þriggja félaga yrði að víkja, og þótti því eðlilegast, að það væri það félagið, sem ekki fæst við verzlun á landbúnaðarafurðum, en þau félögin látin sitja í fyrirrúmi, sem verzla fyrir bændur og hafa sýnt, að þau eru þess vel megnug.
Hv. þm. talaði ennfremur um það, að þau tvö neytendasambönd, sem fulltrúa eiga í nefndinni, væru ekki verzlunarfélög. Þetta er rétt, en þess er að gæta, að neytendur hafa engin landssambönd, sem eru verzlunarfélög, á sama hátt og bændur. Ég er þess fullviss, að með því að sýna neytendum sanngirni í skipun nefndarinnar hefir málinu verið unnið mikið gagn, en hitt hefði orðið til að spilla fyrir framkvæmd laganna.
Hv. 2. þm. Rang. og hv. þm. N.-Ísf. fundu að þeim ákvæðum laganna, að ekki mætti selja kjöt nema gegnum verzlanir, sem nefndin viðurkennir. Um þetta má ef til vill deila. En ég verð þó að álíta, að þessir hv. þm. hafi ekki komið með nægilegar röksemdir fyrir máli sínu og að því beri að stefna, að milliliðakostnaður verði sem minnstur, þótt selt sé gegnum þær stofnanir, sem viðurkenndar eru af nefndinni. En þetta atriði má ræða nánar í landbn., og skal ekki standa á mér að liðka til um viðunanlega lausn þess.