08.10.1934
Efri deild: 5. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 608 í B-deild Alþingistíðinda. (726)
27. mál, sláturfjárafurðir
Magnús Guðmundsson:
Það er auðheyrt á hæstv. landbrh., að honum er annara um fylgi Morgunblaðsins við þetta mál en stuðning okkar þingmannanna hér í deildinni. Annars má hann biðla til Morgunblaðsins eins og hann vill fyrir mér; ég skal ekki vera „jalloux“. En undarlegt má það heita, ef Morgunblaðið er annað eins stórveldi og hæstv. ráðh. lætur og hefir reynt að spilla fyrir kjötsölunni eins og hann segir, ef kjötið hefir samt selzt jafnvel eða betur en vant er. (Forsrh.: Ég hefi aldrei sagt að Morgunblaðið væri stórveldi). Ef ráðh. telur Mgbl. áhrifalítið, hví er hann þá alltaf að tala um það blað?