19.10.1934
Efri deild: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í B-deild Alþingistíðinda. (729)
27. mál, sláturfjárafurðir
Frsm. (Páll Hermannsson):
Ég þarf fátt eitt um þetta mál að segja f. h. landbn. N. hefir íhugað málið á nokkrum fundum og leitað sér upplýsinga, sérstaklega frá form. kjötverðlagsnefndar. Hún er á einu máli um það, að ráða hv. deild til að samþ. frv.
Það kom til orða í n. hjá einstökum nm., að fá frv. breytt. Það varð að samkomulagi, að þessi breyt. var ekki borin fram í n., heldur í hv. deild.
Þess vegna hafa nm. óbundin atkv. um þær breyt. og aðrar, sem fram kunna að koma, eins og tekið er fram í nál. Hér liggja nú fyrir brtt. á 3 þskj. Sé ég ekki ástæðu til að ræða þær að þessu sinni. Til þess getur unnizt tími einhvern tíma síðar.