01.10.1934
Neðri deild: 1. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í B-deild Alþingistíðinda. (73)
Kosning forseta neðri deildar
Fjármálaráðherra kvaddi elzta mann deildarinnar, Sigfús Jónsson, 2. þm. Skagf., til að taka forsæti og gangast fyrir kosningu forseta deildarinnar. — Aldursforseti frestaði fundinum til næsta dags.
Fimmtudaginn 4. okt. var fundinum fram haldið.
Aldursforseti kvaddi sér til aðstoðar sem skrifara þá Emil Jónsson, þm. Hafnf., og Pétur Ottesen, þm. Borgf.