19.10.1934
Efri deild: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í B-deild Alþingistíðinda. (736)
27. mál, sláturfjárafurðir
Magnús Guðmundsson:
Ég tók það fram við 1. umr. þessa máls, að ég væri samþ. frv. í höfuðatriðum. Ég hygg að ég hafi bent á það þá, að það hefði verið kvartað um við mig af mínum kjósendum, að rofin væru ýms þau beinu sambönd, sem áður hefðu verið milli framleiðenda og neytenda, og ég tók það fram þá, að ég teldi æskilegt, til þess að lög þessi yrðu ekki óvinsæl, að hægt væri á einhvern hátt að bæta úr þessu. Nú hafa komið fram till. í þessa átt, og má þar nefna brtt. frá þeim hv. þm. Rang., sem sæti á í þessari d. Ég verð að segja, að mér þykir vænt um að sjá þessar brtt., því að þær fara einmitt í þá átt, sem ég benti á. En nú segir hæstv. forsrh., að það hafi verið leyft að selja beint milli framleiðenda og neytenda. Hann sagði, að n. hefði leyft þetta, en mér er spurn: Hvar hefir það stoð í lögunum, og ef það hefir verið leyft, hvað er þá á móti því að taka það upp í lögin? Ég get ekki skilið, að það mæli neitt á móti því. Hæstv. forsrh. heldur, að það verði allt of mikið framboð á kjöti á vissum tímum, og það geti haft í för með sér, að farið verði í kringum lögin og selt undir lágmarksverði. Þetta held ég, að sé misskilningur. Það er engin hætta á, að bændur selji kjötið undir því verði, sem er lögboðið lágmarksverð. Ég veit ekki, hvaða hvöt þeir ættu að hafa til þess. Og í öðru lagi er það fjarstæða, að nokkrum manni skuli detta það í hug, að bændur séu svo óforsjálir, að þeir láti meira kjöt á markaðinn en þeir eru vissir um að geta selt. Ég er sannfærður um, að það er ekki á neinn byggt. Mér finnst því, að hæstv. forsrh. sé of eintrjáningslegur í þessu máli. Hann viðurkennir, að við framkvæmd laganna hafi komið fram ýmsir annmarkar, og hv. þm. N.-Ísf. hefir bent á ýmislegt, sem er áberandi í þessu efni, en hæstv. ráðh. vill ekki gera neitt til þess að lagfæra þessa annmarka. Við hljótum þó allir að vilja, að þessi lög, sem eiga að létta undir með bændum, geri það á þann hátt, að sem minnstir annmarkar fylgi. Ég get ekki séð, þótt brtt. hv. 2. þm. Rang. verði samþ., að það geti komið til nokkurra mála, að það verði til skemmda á lögunum. Ég verð mjög að taka undir það, sem hv. 2. þm. Rang. sagði, að það sé engin hætta á, þó að bændum séu leyfð bein viðskipti, að þeir svíkist um að borga verðjöfnunargjaldið. Ég er sannfærður um, að þeim dettur það ekki í hug. (Forsrh.: Ég hefi aldrei sagt það, svo það er haft eftir einhverjum öðrum en mér). Það var þó eitt af því, sem hæstv. ráðh. færði gegn þessum brtt. (Forsrh.: Ég hefi aldrei sagt neitt um það, og það er líka skrifað þarna, hvað við segjum). Ef engin hætta er á, að verðjöfnunargjaldið verði ekki borgað, hvað er þá á móti að leyfa beinu viðskiptin? Þær ástæður, sem hæstv. ráðh. færði fram að öðru leyti, þarf ég ekki að minnast á, þær voru einskisvirði.
Ég heyrði ekki, að hæstv. ráðh. svaraði fyrirspurn hv. þm. N.-Ísf. um það, hvort heimilt sé að selja fé á fæti til slátrunar. Þetta atriði hefir verið mjög um deilt, og væri æskilegt að fá að heyra, hvað hæstv. ráðh. álítur um það.