19.10.1934
Efri deild: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í B-deild Alþingistíðinda. (737)
27. mál, sláturfjárafurðir
Þorsteinn Briem [óyfirl.]:
Hæstv. forsrh. bar það fyrir, þegar hann var að andmæla brtt. á þskj. 97, að hann hefði svarað því máli áður, við 1. umr. þessa máls. Ég minnist þess ekki, að hann hafi um þetta gefið nokkur svör, sem gagn er að. Ég man eftir því einu, sem hann sagði um þetta, að Búnaðarfél. Ísl. væri ekki verzlunarfélag. Þetta ber víst svo að skilja, að Verkalýðssambandið sé verzlunarfélag. Það eru út af fyrir sig góðar upplýsingar. (Rödd af þingbekkjum: Heldur ómerkilegt!). En ég hygg, að Búnaðarfél. Ísl. sé ekki ómerkilegt fyrirtæki fyrir bændur, þó að það sé ekki verzlunarfélag, og að Búnaðarfél. Ísl. hafi hingað til gegnt þeim störfum að vera málsvari bænda yfirleitt í mörgu. Það var vissulega gengið út frá því á síðasta Alþ. í þessari d., að Búnaðarfél. hefði einmitt fulltrúa í þessari kjötverðlagsn. Ég hefi ekki heyrt nokkur rök fyrir því, að félag bænda, sem er fulltrúi bænda, ætti ekki að hafa meiri hl. í þessari n. Og það er hart, ef íslenzkir bændur eiga að vera það lægra settir en stallbræður þeirra í öðrum löndum, að þeir megi ekki eiga meiri hl. í kjötverðlagsn. hér, þar sem þeir hafa alla sína fulltrúa í Noregi í samskonar n., og það án þess að mótstaða hafi komið fram frá hendi neytenda. Ég vil vanta þess, að ísl. neytendur verði í þessu efni jafnsanngjarnir og norskir kjötneytendur, og hafi ekki þann yfirgang í frammi, að þeir heimti jafna fulltrúatölu í þessari n. og framleiðendurnir sjálfir.
Hæstv. ráðh. gat þess, að smásölukostnaður á kjöti hér í Rvík hefði minnkað verulega. Reyndar sagði hann, að hann hefði minnkað meira en kjötverðlagsn. hefði ákveðið. En hver ástæða er til þess, að gróðinn, sem fengizt hefir við það að losna við milliliðina, komi neytendunum einum til góða? Sá sparnaður, að losna við milliliðina um kjötsöluna, á auðvitað fyrst og fremst að koma framleiðendum kjötsins til góða, því að þeirra vegna var þessi löggjöf upphaflega sett.