19.10.1934
Efri deild: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 625 í B-deild Alþingistíðinda. (741)
27. mál, sláturfjárafurðir
Jón Baldvinsson [óyfirl.]:
Þeir voru ekki lánlausir íslenzkir bændur, að það skyldi ekki verða hlutskipti hv. 10. landsk. að bera fram þetta mál og „organisera“ kjötsöluna. Það er augljóst, að hann hefði siglt því öllu í strand, eftir því, sem hann talar núna. Sú varfærni, sem talin er hafa einkennt framkomu þessa hv. þm., er nú algerlega farin af honum. Hann talar um, að það sé móðgandi fyrir íslenzka bændur, að þeir eigi ekki alla mennina í n. Ef hv. 10. landsk. hefði mátt ráða, þá hefði hann skipað eintóma framleiðendur í n. En þá hefði auðvitað ekkert samkomulag náðzt og allt málið sprungið. Þetta ætti hv. þm. að vita, sem hefir gutlað talsvert í pólitík og verið í ráðherrastóli. Hann ætti að vita, að ef neytendurnir eru á móti málinu, þá er ómögulegt að koma því fram. Hann talar um, að það sé metnaðarmál íslenzkra bænda að eiga alla fulltrúana í nefndinni, svo að þeir gætu þá skipað þessum málum eins og þeim sýndist. Þá ætti ekki tillit að taka til þeirra þúsunda, sem taka við vörunni og kaupa hana. Hv. þm. vitnar í Noreg og segir, að þar eigi bændurnir alla mennina í nefndinni. Hann segir, að þetta hafi ekki vakið neinar deilur í Noregi. Ég les nú ekki svo mikið í norskum blöðum, að mér sé svo vel kunnugt um þetta. Það getur verið, að þar hafi engin deila risið út af kjötsölumálinu. En mjólkurstríð var þar. Neytendur neituðu að kaupa mjólkina og hinir hættu að selja hana. Þetta stríð var lagað með samkomulagi milli seljenda og neytenda, eins og hér hefir verið gert í kjötsölumálinu.
Hv. þm. talaði um, að verkamannasambandið og iðnsambandið væru ekki verzlunarfélög, og vitnaði í því sambandi í ummæli hæstv. forsrh., sem hann hefði viðhaft á fundi einum. Hv. þm. sagði þetta með hálfgerðri kímni, eins og hann vildi gefa í skyn, að þetta væru ná samt hálfgerð braskfélög. Eftir frv. eru nú teknir í n. fulltrúar frá tveim stærstu neytendafélögunum í landinu, og eiga þeir að gæta þess, að kosti neytenda sé ekki þrengt. Ef hv. 10. landsk. hefði ráðið í þessu máli, þá hefði hann sprengt allt í loft upp, og þá hefði ekki orðið neitt úr neinn.