19.10.1934
Efri deild: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í B-deild Alþingistíðinda. (742)

27. mál, sláturfjárafurðir

Magnús Guðmundsson:

Ég hefi skilið hæstv. forsrh. svo, að hann telji sölu á fé á fæti til slátrunar leyfilega. En þetta hefir verið umdeilt mál. Ég álít fyrir mitt leyti, að hún sé leyfileg. Hún er a. m. k. ekki bönnuð. Hæstv. forsrh. sagði, að bein viðskipti með hangikjöt væru leyfileg, en ekki með nýtt kjöt. Í lögunum er engin stoð fyrir þessu. Það hafa því komið fram annmarkar, sem úr hefir verið bætt við framkvæmd laganna. Og um það er auðvitað ekkert nema gott eitt að segja. En þegar bent er á þessa annmarka hér og reynt að bæta úr þeim með brtt., því má þá ekki samþ. þær till.?