30.10.1934
Neðri deild: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 646 í B-deild Alþingistíðinda. (765)

27. mál, sláturfjárafurðir

Ólafur Thors:

Það er nú alllangt umliðið síðan Sjálfstfl. tók upp á sínar herðar og beitti sér fyrir því, að íslenzk kaupgeta og neyzluþörf væri varðveitt fyrir íslenzka bændur. Það hefir verið álit Sjálfstfl., að til þess að ná þessum tilgangi væri nauðsynlegt að skipuleggja markaðinn innanlands, svo að hann yrði hagnýttur sem bezt. Hinsvegar hefir Sjálfstfl. ekki, fremur en aðrir flokkar þingsins, verið á alveg einu máli um það, hvernig sú skipulagning skyldi framkvæmd.

En til þess þó að freista þess að ná þessum tilgangi, þá bar ég fyrir mitt leyti fram, ásamt nokkrum öðrum þm., á aðalþinginu 1933 frv. um það, að skipuleggja mjólkurmarkaðinn, frv., sem ríkisstj. hefir nú tekið upp á sína arma, og þannig siglt í kjölfar okkar í þessu máli, sem það frv. fluttum. Landsfundur sjálfstæðismanna, sem háður var í apríl í vor, markaði skýrt stefnu flokksins í þessum málum og lýsti því yfir, að Sjálfstfl. væri því fylgjandi, enda þótt það yrði ekki framkvæmt nema með fórn frá vissum stéttum þjóðfélagsins, að íslenzk kaupgeta og neyzluþörf yrði vernduð íslenzkum bændum til framdráttar, að svo miklu leyti, sem þeir þyrftu þess með. Jafnframt lýsti flokkurinn því yfir, að þessu vildi hann fyrst og fremst koma í framkvæmd með tollalöggjöf. En auk þess taldi landsfundurinn, að það mundi verða þörf á sérstakri lagasetningu til þess að ná þessum tilgangi.

Ég get þess vegna fyrir mitt leyti og samkv. þeim vilja, sem Sjálfstfl. lýsti yfir á landsfundi sínum um þetta efni, lýst ánægju minni yfir þeirri viðleitni til þess að fullnægja þar til greindum tilgangi, sem lýsir sér í frv. hæstv. stj. En ég vil þó ekki leyna hinu, að ég tel, að í þessu frv. eins og það nú liggur fyrir séu ýmsir gallar, sem þarf að leiðrétta. Og ég vil ennfremur geta þess, og ég segi það fyrir mig persónulega, en hefi ekki rætt um það við flokksmenn mína, að það getur vel verið, að ríkisstj. takist að búa svo um þessa löggjöf og framkvæmd hennar, að hún neyði þá menn, sem borið hafa mál þetta fram af áhuga fyrir velgengni íslenzkra bænda, til þess a. m. k. að hugsa sig um, áður en þeir fylgi henni í þessu máli. Ég hygg, að hæstv. forsrh. hafi þegar orðið var við það, að það er mjög misjöfn ánægja manna með þessi l., og sömuleiðis með aðra löggjöf, sem hér liggur fyrir, þ. e. a. s. mjólkursölulögin.

Ég ætla svo ekki að gera neinar sérstakar aths. um einstök atriði málsins að þessu sinni. Málið verður athugað í n., og þar mun Sjálfstfl. að sjálfsögðu koma á framfæri þeim breyt., sem hann telur, að þurfi að gera á þessari löggjöf, til þess að þar sé öllu á þann veg fyrir komið, sem æskilegast er.