30.10.1934
Neðri deild: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í B-deild Alþingistíðinda. (766)

27. mál, sláturfjárafurðir

Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Þær almennu aths., sem komu fram í ræðu hv. þm. G.-K., sé ég ekki ástæðu til þess að gera að umræðuefni á þessu stigi málsins. Það er ekki nema gott eitt við því að segja, að hann persónulega sé fylgjandi þessum málum. En viðvíkjandi því, sem fram kom um stefnu Sjálfstfl. eða stefnu þessa hv. þm. sérstaklega í mjólkurmálinu, þar sem hann segist hafa fyrstur manna flutt frv. um skipulagningu á mjólkursölu, þá vil ég leyfa mér að leiðrétta það, því að það er alveg rangt. Hv. þm. Mýr., ásamt fleirum, flutti á þinginu 1932 frv. um þetta efni, sem hv. þm. G.-K. var að hæla sér af að hafa flutt fyrstur manna. Og ég vil leyfa mér að vekja athygli á því, og bið hv. þdm. að taka sérstaklega eftir því, að þó að þessi áhrifamaður innan Sjálfstfl. hafi gerzt 1. flm. að frv. sem þessu, þá hafði það ekki meiri áhrif en það, að því var komið til leiðar af þáv. formanni Sjálfstfl., að frv. var gersamlega eyðilagt í Ed., og ekkert skilið eftir af því annað en tvær lítilfjörlegar greinar, sem voru þýðingarlitlar eða þýðingarlausar, ef þær voru þá ekki til hins verra fyrir skipulagning mjólkurmarkaðsins. Þessi var árangurinn af þeim stuðningi, sem þessi hv. þm. hefir léð þessu máli, og á því er hægt að sjá, hvernig færi um skipulagningu þessara mála, ef Sjálfstfl. ætti að hafa hana á hendi.

Viðvíkjandi stefnu flokksins í þessu máli er það að segja, að eftir því, sem ég bezt man, þá mun því hafa verið lýst yfir á landsfundinum í vor, að flokkurinn ætlaði að „rannsaka“, hvað þyrfti að gera í málinu. Ég hafði gaman af að sjá orðalagið á þessu, og það væri æskilegt að fá að heyra við umr. um þetta mál, orðalagið á þeirri gr. stefnuskár flokksins, þar sem sérstaklega er vikið að löggjöfinni um afurðasöluna. - Ég mun svo ekki deila um málið á þessu stigi þess, en vildi aðeins taka þetta fram, út af ummælum hv. þm. G.-K.