30.10.1934
Neðri deild: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 652 í B-deild Alþingistíðinda. (775)
27. mál, sláturfjárafurðir
Pétur Ottesen [óyfirl.]:
Mér finnst harla einkennilegt, þó nokkur skyldleiki sé milli frv. um sláturfjárafurðir og mjólkursölu, að blanda þeim saman í þessum umr. (Forsrh.: Vill ekki hv. ræðumaður snúa sér með það til hv. þm. G.-K.?). Ég þarf ekki að spyrja hæstv. forsrh. um, hvað ég eigi að segja, því ég var búinn að hugsa mína ræðu. Annars ætti hæstv. ráðh. að hugsa fyrst og fremst um að standa sæmilega fyrir sínu eigin máli, áður en hann fer að leiðbeina öðrum. Ég verð að segja, að mér fannst það alger óþarfi af hæstv. forsrh., þó hv. þm. G.-K. benti á, að hann hefði verið flm. að frv. um mjólkursölu, að hefja umr. um það með ádeilu á vissan stjórnmálafl. Það hefði hann átt að geta látið bíða, a. m. k. þar til mjólkurmálið kemur til umr. Hefir þetta leitt til þess, að umr. hafa að mestu snúizt um mjólkurmálið, og hv. sessunautur minn, þm. Mýr., fann ástæðu til að standa upp og vitna með hæstv. forsrh. í því máli. Var það, sem hann sagði, eingöngu um mjólkurmálið. Hann minntist ekki einn orði á það mál, sem hér er til umr. Ég verð að segja, að mér finnst stjórnarfl. illa farast að tala um málþóf hér á Alþ., þegar þeir ganga á undan um að ræða allt önnur mál en fyrir liggja. - Út af þessu skal ég svo ekki segja meira. En út af þessu máli, sem hér liggur fyrir vil ég segja það, að það er harla einkennilegt, en sýnir vel skapferli stjórnarfl. - og þó sérstaklega hæstv. dómsmrh. -, hvernig þeir haga sínum málflutningi. Síðan þeir fyrst tóku fyrir afurðasölumálið hefir ekki komið svo út frá þeim nokkurt blað, að því hafi ekki verið slegið föstu, og reynt að telja fólkinu trú um, að Sjálfstfl. og blöð hans væru á móti málinu. Þetta er reynt að berja inn í sveitafólkið, og mun gert til þess að skapa Sjálfstfl. þar andúð og óvinsældir, sem andstæðingi þessa máls, sem er vitanlega hreinasta lýgi, (Forseti hringir.) - hreinasta lýgi frá rótum. En svo að ég spari hæstv. forseta fleiri hringingar, get ég eins kallað það vísvitandi ósannindi, ef það þykir þinglegra. - En þetta er gert til að hilma yfir þá árás, sem stj. var búin að gera á íslenzkan landbúnað með kauphækkuninni í sumar. Þetta er svo fóðrað með því, að til þess að fá þessi lög fram, hafi verið óhjákvæmilegt að gera samning við sósíalistana um hækkun á vegakaupinu. Þeir gátu ekki, með öllum sínum ósannindum, fóðrað þá samninga á annan máta fyrir landslýðnum.
Nú skal ég rekja hér, hvað draga má út úr afstöðu Sjálfstfl. til þessa máls, og sýna fram á, hversu vingjarnlega hann hefir snúizt við því. Skal ég ekki rekja frekar mjólkurmálið eða blanda því inn í þetta mál.
Á þingi 19331 kemur þáv. hv. landsk. þm. Jón Jónsson í Stóradal fram með þáltill. um að skipa nefnd til að rannsaka og undirbúa afurðasölumálið og koma fram með till. um, hvað heppilegast væri að gera til þess að koma því í hagkvæmara horf. Hvernig var afstaða Sjálfstfl. í því máli? Var hann því andvígur? Ég held ekki. Og á landsfundi Sjálfstfl. síðastl vetur, sem hv. þm. G.-K. minntist á, var samþ. till., sem fór í þá átt, að fundurinn teldi rétt að skipa nefnd til að rannsaka málið og koma fram með till., sem lagðar yrðu fyrir Alþ. Og þegar hæstv. ráðh. er að skopast að ályktun landsfundarins um að vilja láta rannsaka málið, er hann að skopast að sinni eigin einfeldni. Engum dettur annað í hug en athuga og rannsaka þau vandamál, sem þarf að leysa, nema hæstv. ráðh. Hann er því að opinbera hér einfeldni sína. Ég kveinka mér við að nefna barnslega einfeldni - vil ekki segja heimsku -, þegar hann er að skopast að rannsókn þessa máls. Það hefir því komið fram viðurkenning frá Sjálfstfl. um, að hér væri mál, sem þyrfti að rannsaka og leysa og taka föstum tökum. Og það er algerlega óréttmætt að kenna því ráðuneyti, sem fór frá í sumar, um, að málinu var ekki lengra komið. Heldur er því einu um að kenna, að nefnd sú, sem skipuð var í málið, var ekki búin að ljúka rannsóknum sínum að undirbúningi málsins, og því ekki búin að leggja fram till. sínar, sem framkvæmdir stj. áttu að byggjast á. Það fellur því enginn blettur hvorki á Sjálfstfl. eða Bændafl. fyrir afskipti af þessum málum. Það var viðurkennt af báðum flokkunum, að bráðabirgðalög um kjötsöluna væru nauðsynleg, þar sem framkvæmd laga, sem hefðu beðið afgreiðslu þings, hefði orðið að fresta um 1 ár. Svona horfir nú málið við fyrir þeim mönnum, sem vilja byggja dóm á því, sem fyrir liggur í þingtíð., blöðum og víðar. En þrátt fyrir allt þetta stimpla blöð stjórnarfl. Sjálfstfl. algerlega sem óvin þessa máls. En því þurfa stjórnarblöðin að bera fram alla þessa lygi eða vísvitandi ósannindi? - svo hæstv. forseti þurfi ekki að hringja. Það er verið að draga hér fram klausur úr bæjarblöðum ýmsra fl. Ég skal ekki bera blak af því, sem sagt er í blöðunum, en við samanburð á þeim finn ég engan mismun. Vil ég um það taka mér í munn orð hæstv. forsrh., er hann hafði um Sjálfstfl., að óheppileg blaðaskrif um málið „gangi upp í sjálfum sér“. Mér þykir vænt um að sjá, að ég hefi rumskað svo við ritstjóra aðalmálgagns stj. að ég sé, að hann hefir fundið ástæðu til að biðja um orðið. Það er því ekkert annað en vandræðafálm hjá hæstv. ríkisstj. að bera fyrir sig blaðaskrif, sem sögð hafa verið af öðrum um málið. Það er ekki nema eðlilegt, þegar gera á ráðstafanir til að hækka kjötverðið, þó kaupendurnir láti heyra rödd frá sér. Við getum haft góða samvizku af því, að ekki er farið fram á meira en það, sem við bændurnir þurfum nauðsynlega til að lifa. Hér er aðeins stefnt að því, að þessi annar aðalatvinnuvegur landsmanna geti haldizt uppi og staðið að sínum hluta undir að bera uppi þjóðarbúið. En það er síður en svo, að með því verðlagi, sem nú er, getum við lagt fyrir. Því miður er sannleikurinn sá, að þrátt fyrir það berjumst við í bökkum. En meðan ekki er hægt að standa í fullum skilum með greiðslu af skuldum, auk annara þarfa, er búskapurinn ekki kominn á heilbrigðun grundvöll, eða hægt að telja hann sómasamlega rekinn. Ég hefi með þessu viljað sýna fram á, að það er fullkomlega fordæmingarvert af stj.fl. að útbásúna sem afstöðu Sjálfstfl., að hann sé á móti málinu, þó einstaka rödd hafi heyrzt um, að þörf væri breytinga. Öll ummæli frá andstæðingum Sjálfstfl. um afstöðu hans í málinu hrynja því svo gersamlega til grunna, að stjórnarfl. liggja sjálfir flatir og útataðir í því svaði, sem þeir hafa vaðið í. En það getur verið, ef þeir nota nógu mikla sápu, að þeim takist í bili að þvo sig hreina í augum sinna flokksmanna, en það verður aldrei lengi, þeir eru of skítugir til þess. Ég skal þá benda á, að þau mótmæli, sem komið hafa fram, eru ekki gegn lögunum í heild, heldur hefir aðeins verið bent á, að sumum atriðum þeirra mætti skipa betur á annan veg. Enda hefir sjálfum stjórnarfl. þótt ástæða til að breyta frv. og laga í ýmsum atriðum. Ég fyrir mitt leyti er ekki samþykkur 1. brtt., og fer eftir svari ráðh. hvort ég get samþ. 2. brtt., en þær sýna þó, að lögin hafa ekki verið gerð svo alger úr garði, að ekki væri ástæða til að athuga þau.
Ég skal þá minnast á þessar 2 brtt. á frv., sem samþ. voru í Ed., og vil þá fyrst koma að því ákvæði bráðabirgðalaganna, þar sem gert er ráð fyrir að leggja skatt á allt nýtt kjöt. En þetta kemur þannig fram, að skattur af útfluttu kjöti er endurgreiddur, svo raunverulega hvílir skatturinn eingöngu á innanlandssölunni. Og þar sem innanlandsmarkaðurinn er langmestur í Rvík, og verð þar yfirleitt hæst, kemur skatturinn langmest niður á mönnum kringum Rvík. Samkv. bráðabirgðal. er heimild til að leggja allt að 8 aura verðjöfnunarskatt á kg., en sú heimild var ekki notuð í haust nema í 6 aura. En nú hefir hv. Ed. fært þessa heimild upp í 10 aur. Þegar miðað er við þær ráðstafanir, sem verið er að gera til að halda uppi kjötverðinu, er ekki rétt að mótmæla alveg verðjöfnunarskatti, sem ætti að draga úr aðstreymi kjöts á Rvíkurmarkað, úr fjarlægum sveitum, og útiloka að of mikið bærist á markaðinn. En það er ekki nóg, að kjötið sé selt við ákveðnu verði, heldur verður jafnframt að vera tryggt, að ekki sé flutt inn á markaðinn meira kjöt en hægt er að selja og markaðurinn þolir. Annað er gersamlega meiningarlaust. Ég varð var við það í ferð minni austur um Árnes- og Rangárvallasýslur, að bændur telja, að verðjöfnunarskatturinn komi misjafnt og oft ósanngjarnlega niður. Einkum var þetta í Rangárvallasýslu, þar sem fé er svo rýrt, að það er aðeins undantekning að fá kjöt í I. fl. og jafnvel II. fl., en mestur hluti þess fellur undir III.-IV. fl., og sumt fæst alls ekki flokkað. Þar var algengt, að menn litu svo á, að þeir, sem byggju í landgæðasveitum og hefðu vænt fé, stæðu engu verr að vígi að framleiða kjöt á útflutningsmarkað en menn þar í sveit á þann innlenda. Nú býst ég við, að þegar þessir menn sjá, að Alþingi hefir hækkað hámark verðjöfnunargjaldsins upp í 10 aura, þá vakni hjá mörgum spurning um hver verði niðurstaða búskaparins, ef þeir með sitt rýra fé eigi að greiða svona háan skatt til þeirra, sem væna féð hafa, og hvort það sé sanngjarnt, jafnvel þó þeir þurfi að nota erlendan markað.
Ég vil svo aðeins benda á, hvort það hefir verið tryggt við framkvæmd laganna á þessu hausti, að ekki bærist of mikið kjöt að úr fjarlægum héruðum, svo ekki seljist allt kjöt úr nærliggjandi sveitum. Mér er kunnugt um, að á öndverðri sláturtíð var farið að flytja inn til Rvíkur kjöt norðan af Borðeyri og vestan úr Dölum og víðar að, áður en séð var, hvað slátrun hér yrði mikil. Ég veit, að slátrun verður þó minni en í fyrra, sem stafar af þeim óskaplegu áföllum, sem menn urðu fyrir vegna ormaveikinnar í sauðfénu síðastl. ár. Þeir menn, sem hafa notað markað hér, hljóta að gera kröfur til að sitja að honum frekar en þeir, sem fjarlægari eru og njóta eiga verðjöfnunargjaldsins. Þetta verður að vera tryggt.
Annað atriði er í þeirri breyt., sem gerð var í Ed., og ég get látið mér nægja að gagnrýna ef svör hæstv. dómsmrh. falla. á þann veg, að hann telji þá tortryggni, sem ég hefi borið fram gagnvart þessu, á röngum rökum byggða. Það er ekki ástæða til þess að óttast, að lögin verði skilin eða framkvæmd á þann hátt, sem hugsanlegt væri að framkvæma þau á. Við setninguna, sem stendur í 3. gr. frv., „að enginn megi slátra fé .... “ á að bæta við: „né kaupa fé til slátrunar“. Ég hefi minnzt á þetta áður. Það, sem ég hefi við þetta að athuga, er ekkert nema það, að þetta verði ekki framkvæmt þannig, að þeim, sem hafa fengið leyfi til þess að verzla með sláturfjárafurðir, verði ekki settur stóllinn fyrir dyrnar, þannig að þeir fái leyfi til þess að kaupa fé á fæti til þess að selja. Ég álít það liggja fyrir utan þær ráðstafanir, sem hér um ræðir, að menn fari að skipta sér af því, hvort menn hafi þá tilhögun á fjársölunni á haustin, sem sett hefir verið, og hvort þeir reka sjálfir féð til slátrunar, eða hvort þeir selja féð aðallega á fæti. Ég veit, að sú tilhögun er töluvert viðhöfð hjá okkur í Borgarfirði, og ég býst ekki við, að menn sætti sig vel við, að tekið sé fram fyrir hendurnar á þeim í þessu efni.
Hinsvegar er ég því samþykkur, að girt sé fyrir það, að einstaka „spekulantar“, sem ekki taka fé upp í viðskipti, geti fengið að kaupa fé og selja á fæti. Sé það eini tilgangurinn með breyt. að útiloka þá menn, er ég því vitanlega samþykkur, bara ef ekki er farið að skerast í það, hverja tilhögun menn hafa á fjársölunni, þeir sem hafa þegar fengið leyfi til þess að verzla með afurðir.
Fleira mun ég ekki minnast á nú, því að önnur einstök atriði á frekar að ræða við 2. umr. málsins. Ég vil að lokum skjóta því til þeirrar n., sem fær málið til athugunar, að hún taki verðjöfnunargjaldið til gaumgæfilegrar athugunar, og þá sérstaklega hækkun þá, sem gerð var á því í Ed.