30.10.1934
Neðri deild: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 669 í B-deild Alþingistíðinda. (785)

27. mál, sláturfjárafurðir

Sigurður Kristjánsson:

Ég veit ekki, hvort það er fundarfært; það má mig gilda einu. En ef ætti að ganga til atkv. um málið strax, þá væri viðkunnanlegra, að deildin væri ályktunarfær. (Forseti: Deildin er ályktunarfær).

Ég ætla ekki að fara neinar krókaleiðir að þessu máli. Það hefir farið svo um þær umr., sem nú hafa fallið, að þær hafa mjög mikið snúizt um það, hverjir væru fylgismenn þessa máls og hverjir ekki. En mér virðist, a. m. k. af ræðum stjórnarsinna, að þeir hefðu átt að byrja á því að gera sér ljóst, hvað þetta kjötmál er, því að ég hefi ekki orðið var við, að þeir skildu það ennþá. Þegar um það er að ræða að leiða þetta mál til góðra lykta, þá hlýtur það að vera frá sjónarmiði mínu það, að hagnýta sem bezt innlenda kjötmarkaðinn. Nú er það áreiðanlega víst, að það er ekki aðeins einn aðili í þessu máli, eins og mér finnst vera frá sjónarmiði stjórnarsinna. Það er vitanlegt, að það eru tveir aðilar í þessu máli, annarsvegar framleiðendur kjötsins og hinsvegar neytendur þess, og ef það er einhver sérstök goðgá að vilja taka eitthvert tillit til neytendanna, þá ætla ég að gera mig sekan um þá goðgá. Því mér sýnist, sennilega öfugt við það, sem hv. stjórnarsinnum sýnist, að neytendunum komi það mikið við, hvernig kjötsölunni er hagað. Mér sýnist einnig þeir vera borgarar í þessu þjóðfélagi og eiga að hafa eins mikinn rétt eins og aðrir þjóðfélagsborgarar.

Deilurnar hér hafa mikið snúizt um það, hverjir væru með þessu máli og hverjir á móti, og svo um það, hverjir væru upphafsmenn að því og hverjir ekki. Mér finnst það mjög einkennilegur hugsunarháttur að halda því fram, að menn, sem fylgja kjarna eins máls, geti ekki verið ósáttir um einstök atriði. Ég veit ekki betur en að fylgismenn þessa frv., eða kjarna þess, hafi deilt um það langan tíma hér í hv. d. Og mér finnst það ekkert undarlegt, sízt þegar athugað er, að mörg atriði frv. eru gersamlega óhafandi til þess að ná þeim árangri, sem hlýtur að vera tilgangur frv. að ná, nefnil. að hagnýta sem bezt innlenda kjötmarkaðinn fyrir framleiðendurna.

- Ég hefi, eins og menn vita, ekki átt sæti á þessari samkomu fyrr en nú, og er því ekki að búast við, að ég hafi lagt til þeirra mála á þingi. En ég vil nú segja, að til þessara mála er hægt að leggja víðar og þau koma fleirum við en hv. þm. einum. Í því sambandi vil ég minna þá hv. þm., sem alltaf eru að tala um uppruna þessa máls, á það, að mikið hefir verið um það rætt utan þings. T. d. hefi ég ritað um það, ég man ekki hvað mörgum sinnum. En ég hefi rætt málið á annan hátt heldur en hv. framsóknarmenn hafa gert. Í þeim greinum, sem ég skrifaði um kjötsöluna, og það er frá mínu sjónarmiði upphaf þessa máls, ræddi ég um það, að þar sem saman fór, að útlendi markaðurinn þrengdist og kaupstaðirnir í landinn stækkuðu, þá mætti ekki eingöngu þjarka um það, hvað margar kjöttunnur væri hægt að selja til Noregs; mér fannst orðið tímabært, þegar meira en helmingur þjóðarinnar væri farinn að búa í kaupstöðum, að athuga, hvernig sá markaður yrði bezt hagnýttur. Ýmsa hluti þar að lútandi vildi ég láta taka til umr. Ég man ekki að vitna í öll atriði þessara greina nú, en ég man, að ég tók fram, sem ég nú vil undirstrika, hvað ákaflega væri misjafnlega auðvelt að framleiða kjöt í hinum ýmsu héruðum landsins. Í sumum héruðum kostar uppeldi sauðfjár tvöfalt við það, sem það kostar í léttari héruðunum. Um afurðir sauðfjár er svipað að segja. Í sumum héruðum er fé nálega helmingi rýrara heldur en í öðrum. Og því miður fer sumstaðar saman dýrt uppeldi og afurðalítið fé, og verður þar af leiðandi framleiðslan miklu dýrari heldur en í betri sauðfjárhéruðum. Það er langt frá því, að þeir hv. framsóknarmenn, sem eru að eigna sér þetta mál, hafi athugað þetta sem skyldi.

Það hefir verið rætt mikið um það hér, að blöð sjálfstæðismanna hafi snúizt öndverð gegn þessu máli. En ég hefi ekki heyrt fram færð nein rök fyrir því. Kannske það sé af fjandskap til þessa máls, sem ég hefi skrifað um það! Ég hefi lesið flest það, sem skrifað hefir verið í blöð sjálfstæðismanna um þetta mál, og ég hefi ekki séð þar eitt einasta fjandsamlegt orð í garð þeirra, sem framleiða kjötið. Hygg ég því, að mér sé óhætt að fullyrða, að það séu tilhæfulaus ósannindi, þegar slíku er haldið fram. Hitt hefi ég séð, að blöðin eru ekki sammála um, hvernig þessum málum skuli skipað. Það hefir líka komið fram í umr. hér, að þær sakir, sem framsóknarmenn hafa viljað fella á sjálfstæðismenn fyrir blaðaskrif um þessi mál, byggjast eingöngu á því, að þeim hefir orðið á sú mikla goðgá að vilja taka nokkurt tillit til neytendanna. En ég sé ekki betur en að það sé skylda þeirra, sem um þjóðmál ræða frá öðru sjónarmiði heldur en kjósendaveiðasjónarmiði, að taka jafnt tillit til allra, sem hlut eiga að máli, og það eru í þessu tilfelli framleiðendur og neytendur.

Ég minnist þess, að ég las í Morgunblaðinu þau skrif, sem það var ásakað fyrir áðan. Það var að deila við framkvæmdastjóra Jón Árnason. Hann hafði, eftir því sem ég bezt man, ásakað samvinnufélög kjötframleiðenda hér sunnanlands. Sláturfélag Suðurlands og Kaupfélag Borgfirðinga, fyrir það, að þau hefðu haldið kjötverðinu óþarflega niðri fyrir bændum. Ég held mér sé óhætt að fullyrða, að þessi forstjóri hafi komizt að þeirri niðurstöðu seinna, að þessar ásakanir væru ekki á rökum byggðar. Hygg ég, að honum sé enginn greiði gerður með því, að menn, sem ekki hafa þekkingu á þessu efni, látist vera að bera blak af honum. Hann mun sjálfur vera búinn að útkljá þetta atriði fyrir sina hönd.

Það er okkur kunnugt, sem höfum verið hér í Rvík, að Sláturfélag Suðurlands og Kaupfélag Borgfirðinga hafa ráðið verðlagi á kjöti hér eftir að kauptíð er byrjuð. Og þessi félög hafa hagað verðinu, sem þau ákveða fyrirfram fyrir kauptíðina í hvert skipti, eftir því, sem þau bezt vissu, að markaðsverðið mundi verða erlendis. Þau hafa selt útsöluverðið hér nokkru hærra heldur en búizt hefir verið við í hvert skipti, að markaðsverðið mundi verða erlendis. Ég veit ekki annað en neytendum hér í Rvík hafi fundizt þetta eðlilegt og sjálfsagt. En það mun hafa komið fyrir í eitt skipti, að erlendi markaðurinn breyttist þannig, að það sýndi sig, að e. t. v. hefði mátt fá heldur meira fyrir kjötið utanlands heldur en það verð, sem ákveðið hafði verið hér. Það er æfinlega erfitt að sjá slíka hluti fyrirfram, og ætla ég, að ekki hafi verið nein ástæða til að áfella félögin fyrir þetta. Kjötsalan hér sunnanlands hefir einmitt haft mjög fasta og ákveðna skipun, þar sem verðið hefir alltaf verið fastákveðið fyrir sláturtíð, svo fast, að ekki hefir teljandi verið farið út fyrir það. Það hefir e. t. v. verið seld ein og ein kind með öðru verði, en ekki neitt til muna. Þó ég eigi ekki beinlínis hlut að máli hvað þau blaðaskrif snertir, sem nú hafa farið fram um þetta mál, þá vildi ég ekki láta ómótmælt þeim firrum, að sum blöð hér hafi fjandskapazt gegn því, að bændur fengju sæmilegt verð fyrir kjöt sitt, en önnur aftur barizt hinni góðu baráttu. Ég veit ekki betur en blöð sjálfstæðismanna hafi rætt þetta mál með hag beggja aðila fyrir augum. Stjórnarblöðin virðast mér aftur á móti hafa rætt málið með það fyrir augum, hvort ekki væri hægt að veiða á það eitthvað af atkv., og með þeim mun minni skilningi á hagsmunum þeirra, sem hlut eiga að máli. En hagsmunir framleiðendanna eru vitanlega fólgnir í því að geta selt sem mest af vöru sinni og náð því verði, sem eðlilegt er og kaupgeta neytenda leyfir.

Ég man, að ég hreyfði því máli opinberlega fyrir nokkrum árum síðan, að ekki væri rétt, að menn hefðu mjög misjafna aðstöðu til að sitja að hinum bezta markaði. Ég leit svo á, að þar sem risin voru upp öflug félög, sem ákváðu verðlag á kjöti á stærstu markaðstöðunum innanlands, þá væri rétt að taka til athugunar, hvort kjötframleiðendur sætu ekki að óréttmætlega misjöfnum markaði. Og eins og nú stendur á, finnst mér, að eigi að ræða um það, hvort á skiptingu landsins í verðjöfnunarsvæði og öðrum reglum, sem frv. setur, eru ekki einhverjar misfellur. Ég lít svo á, að þetta mál sé á tilraunastigi og að það verði það jafnvel í fleiri ár. Reynslan verður áreiðanlega að skera úr því, hvernig þessu máli verður best fyrir komið. Það þýðir engum að setja sig á háan hest og hlaða fáryrðum á þá menn, sem ekki eru sammála hverju einasta atriði í því fyrirkomulagi, sem hæstv. stj. hefir í fljótu bragði dottið í hug að hafa á þessu. Þar er áreiðanlega margt misheppnað. T. d. vil ég nefna það, að það er áreiðanlega mjög misráðið að binda svo hendur manna sem gert er með frv. um það að selja beint til neytendanna. Það ætti þvert á móti að láta söluna vera sem allra frjálsasta fyrir þá, sem hafa aðstöðu til að selja milliliðalaust. Sérstaklega er undarlegt, að þeir menn, sem sífellt eru að tala um milliliðalausa verzlun, skuli nú líta svo á, að það sé höfuðkostur að geta bundið alla kjötframleiðendur við milliliði, hvern einn einasta. Það er þó vitanlegt, að sumir þeirra hafa svo litla umsetningu, að þeim er nauðsynlegt að spara sér milliliðakostnaðinn og koma framleiðslu sinni beint til neytenda. Í því héraði, sem ég er einna kunnugastur nú í seinni tíð og er talsvert mikið sauðfjárræktarhérað, er nálega helmingur allrar kjötframleiðslu seldur milliliðalaust. Þetta hérað er Norður-Ísafjarðarsýsla, og tek ég það aðeins sem dæmi. Ég er viss um, að þar er margur smábóndi alls ekki fær um að taka á sig fyrst milliliðakostnaðinn og síðan verðjöfnunargjaldið. Uppeldi sauðfjár mun þarna vera helmingi dýrara heldur en þar, sem það er ódýrast, og bendir þetta á, að það þyrfti að kanna, hvað aðstaða bænda er ákaflega misjöfn. Nú getur verið, að hæstv. stj. heima í hvíta húsinu við Lækjartorg þykist sjá þetta allt saman betur heldur en þeir, sem við það búa og þarna hafa lifað í áratugi. En ég er sannfærður um, að þeir síðartöldu þekkja það miklu betur, og að þeir eru óánægðir með það fyrirkomulag, að allir verði að sæta milliliðum.

Það hefir mikið verið deilt um það, eins og ég sagði áðan, hverjir væru upphafsmenn að þessu máli. Ég ætla ekki að taka frekari þátt í þeirri deilu heldur en orðið er. Ég hefi bent á, að ég á þó nokkuð langa sögu í þessu efni, þó hún sé hvorki breið né viðburðarík. Það stafar af því, að ég hefi rætt málið aðeins sem þjóðmál. Ég hefi litið svo á, að það þyrfti langan undirbúning, þótt ekki virðist svo af skrifum stjórnarsinna. Og ég hefi einnig litið svo á, að það bæri ekki að líta á hag framleiðenda eingöngu, heldur líka á hag neytenda. En hver eru svo upptök málsins af hendi stjórnarsinna? Ég man fyrst eftir, að þetta mál flæddi yfir blaðadálka þeirra fyrir ári síðan, eftir að þeir höfðu beðið ósigur í kosningunum. Þá höfðu þeir bersýnilega fundið út, að það mundi vera hægt að rétta hag sinn í sveitunum með þessu máli. Og það var rætt ákaflega einhliða; í greinunum var eiginlega ekki annað en ein einasta upphrópun: að bændur ættu að fá hærra verð fyrir kjötið. Það er ekki heldur við því að búast, að þeir menn geti litið með víðsýni á mál, sem ætíð vilja gera öll mál að kosningabeitu. Það er enginn vafi á því, að stjórnarflokkarnir, og þá sérstaklega framsóknarmenn, eru alls ekki færir um að ræða þjóðmál, því þeir draga þau ávallt út úr þeim farvegi að vera þjóðmál og gera þau að klíkumálum og kosningamat. En þótt þeir vilji fara þannig með þetta mál, þá er ég ófáanlegur til, að því leyti sem ég tek það til athugunar, að ræða það öðruvísi en sem þjóðmál, og ég hlýt því að líta jafnt á hag þeirra, sem framleiða kjötið og þurfa að fá a. m. k. kostnaðarverð fyrir það, og þeirra sem þurfa að neyta þess. Ég mun þá líta á það, á hvern hátt muni auðveldast að selja sem mest af þessari vöru innanlands, og ekkert láta það hafa áhrif á afstöðu mína, þó ég verði borinn þeim brigzlum, að ég sé að hugsa um „Grímsbýlýðinn“ hér í Rvík, heldur koma með þær brtt., sem ég álít nauðsynlegar, hvort sem heldur er fyrir framleiðendur eða neytendur. Ég vona, að menn reyni smásaman, jafnvel framsóknarmenn líka, að læra að líta þannig á þetta mál, að það sé á tilraunastigi, að tíminn verði að sýna, hvað er hagkvæmast.

Ég ætla ekki að fara út í einstök atriði frv. nú, ég mun fá tækifæri til þess síðar. En ég vildi taka þetta fram nú strax, að ég tel mig engan óvin þess, að gerð sé skipun á þessu máli, þó ég komi til með að deila hart á einstök fyrirkomulagsatriði frv.