05.11.1934
Neðri deild: 28. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 692 í B-deild Alþingistíðinda. (799)
27. mál, sláturfjárafurðir
Jón Pálmason:
Landbn. hefir orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. Ég vil þó skýra afstöðu mína sem nm. til málsins.
Það er öllum kunnugt, að óreiða hefir verið á innanlandsverzlun með kjöt undanfarið, og því hefir verið lagður undirbúningur að nýju skipulagi á kjötsölunni. Ég hafði nú hugsað mér þetta skipulag nokkuð öðruvísi en gert er ráð fyrir í frv. Ég hafði hugsað mér, að stofnaður væru verðlagsnefndir, sem ákvæðu verðið á hverjum stað, en að öðru leyti væri verzlunin frjáls. Nú hefir verið farin í þessu máli leið hinnar þvinguðu verzlunar, og þótt enn sé vafasamt um árangur, finnst mér samt sjálfsagt að sjá, hvernig þessi aðferð tekst, og vil því ekki setja fótinn fyrir það að reyna hina þvinguðu sölu. Ég held því, að úr því, sem komið er, verði miklar undantekningar frá reglunni til þess að spilla árangri laganna.
Um þetta er öll landbn. sammála, en þó flytjum við hv. þm. Ak. tvær brtt., sem ekki raska á neinn hátt grundvelli laganna, en við teljum réttlætismál og til bóta. Ég verð að segja það, að mér finnst sú aðferð hv. frsm. nokkuð óvenjuleg á þingi, að ráðast gegn brtt. okkar, áður en við höfðum gert grein fyrir þeim. En nú mun ég snúa mér að sjálfum brtt.
Fyrri brtt. fer fram á það, að fulltrúum frá Búnaðarfélagi Íslands og Verzlunarráði Íslands verði bætt við í kjötverðlagsnefnd. Mörgum finnst ef til vill ekki þörf á að fjölga mönnum í n., en það er skilyrði til þess, að lögin komi að gagni, að þau njóti vinsælda og séu byggð á sem mestu réttlæti.
Það getur enginn vafi leikið á því, að það sé réttlætismál, að félagsskapur eins og Búnaðarfélagið, sem telur flesta bændur landsins innan sinna vébanda, eigi fulltrúa í n. Og hvað verzlunarráðið snertir hafa kaupmenn til þessa verzlað mikið með kjöt, og því sýnist ósanngjarnt, að þeir hafi ekkert að segja í þessum efnum. Það er því full sanngirni í því, að þeir eigi einnig fulltrúa í n. Þar með er ekkert um það sagt, hvort heppilegra sé, að samvinnufélög eða kaupmenn hafi þessa verzlun með höndum. Úr því verða viðskiptamennirnir sjálfir að skera.
Í síðari brtt. er farið fram á nokkra rýmkun á veitingu slátrunarleyfis. Okkur virðist, að eftir frv. sé ekki leyfilegt að veita nýjum samvinnufélögum slátrunarleyfi, því að gert er ráð fyrir, að þau hafi orðið að verzla með kjöt um langan tíma til þess að fá leyfið. Við skiljum ekki, hvað getur verið á móti því að veita öllum samvinnufélögum, sem stofnuð kunna að verða, slíkt leyfi, því að það virðist ekki geta skipt máli, hvort þau eru fleiri eða færri. Annars er það mín skoðun, að þessi verzlun eigi að vera rekin af félögum, sem hafa engan annan verzlunarrekstur með höndum, eins og t. d. Sláturfélag Suðurlands. Þetta hefir verið gert víða um land, en þau viðskipti hafa, því miður, farið minnkandi.
Í frv. er gert á þann hátt upp á milli verzlana og samvinnufélaga, sem rekið hafa kjötverzlun undanfarið, að skylt er að veita samvinnufélögum slátrunarleyfi, en aðeins heimilt að veita kaupmönnum það. Við viljum breyta þessu svo, að einnig sé skylt að veita verzlunum þvílíkt leyfi, því að það á ekki að vera tilgangur laganna að taka ráðin af framleiðendum um það, hvar þeir vilja verzla. Þetta er að vísu aukaatriði, en stefnir þó í þá átt að gera framkvæmd laganna sanngjarnari en ella, og vona ég, að hv. deild viðurkenni það með atkvgr. sinni um brtt. okkar.