05.11.1934
Neðri deild: 28. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 696 í B-deild Alþingistíðinda. (804)
27. mál, sláturfjárafurðir
Sigurður Einarsson:
Ég sá það fljótlega, að ekki muni blása byrlega fyrir þessari brtt. minni á þskj. 269, þar sem bæði hæstv. landbrh., hv. þm. Borgf. og hv. 2. þm. Árn. hafa þegar talað á móti henni. En í sambandi við ræður þeirra allra verð ég að segja það, að þeir virðast sjá miklu stórfelldari og alvarlegri afleiðingar af þessari brtt. heldur en mér hefir dottið í hug, að gætu orðið, þó hún yrði samþ. Ég vil algerlega neita því, sem kom fram hjá hv. þm. Borgf., að þessari till. væri stefnt gegn vissum félagsskap bænda, svo sem eins og Sláturfélagi Suðurlands. Ég verð að líta svo á, að ekki geti komið til mála, að till. mín hafi neitt nærri því eins víðtæk áhrif eins og hv. þm. virðast álíta, heldur á hún aðeins að koma til greina í mjög smáum stíl. Það kom berlega fram í ræðu minni áðan, að ég vildi síður en svo ráðast á tilgang frv. Ég er ekki í neinum vafa um það, að frv. er fram komið fyrir mikla nauðsyn, og áður en það kom fram eða bráðabirgðalögin, lét ég það í ljós bæði í ræðu og riti, að það þyrfti að setja lög um kjötsöluna. Þaðan af síður gæti mér dottið í hug að bregða á nokkurn hátt fæti fyrir samvinnufélögin.
Ég held, að það sé alveg óþarft að vera að gera ráð fyrir því, að neytendur færu að byggja stór sláturhús, þegar maður athugar þá miklu viðskiptaleti, sem hér á sér stað og lýsir sér í því, að allir reyna fyrst og fremst að kaupa það, sem þeim er hendi næst. Ég gæti til samkomulags sætt mig við, að brtt. minni væri breytt úr skyldu í heimild, þó það sé að vísu æðimiklu verra. Því þó aldrei nema fyrir mér vektu einhver alveg sérstök tilfelli, eins og hv. 2. þm. Árn. var að geta sér til, þá væri gerandi ráð fyrir því í lögunum, að möguleiki væri fyrir hendi til þess að taka tillit til slíkra þarfa, og í sambandi við það get ég eftir atvikum fallizt á heimild til þessarar undanþágu. Ég vil alvarlega mótmæla því, að ég hafi með þessari brtt. viljað spilla fyrir frv. með því að fleyga það. Ég er fullviss um, að ef mál þetta nær fram að ganga, þá skapar það betra og hollara skipulag í þessum málum en ríkt hefir. En skipulagið verður því aðeins voldugt og vinsælt, að það sé sett fyllilega með hagsmuni bæði framleiðenda og neytenda fyrir augum og gangi ekki á rétt neinna, þó að fáir séu og afskekktir.