05.11.1934
Neðri deild: 28. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í B-deild Alþingistíðinda. (812)
27. mál, sláturfjárafurðir
Jónas Guðmundsson:
Ég hafði ekki hugsað mér að kveðja mér hljóðs í þessu máli, en út af þeirri skrifl. brtt., sem hefir komið fram frá hv. þm. V.-Húnv., þá virðist mér, að ekki megi fara svo, að henni sé ekki mótmælt af einhverjum fulltrúum Alþfl. í þessari hv. d.
Í þessari brtt. er gert ráð fyrir því að svipta algerlega neytendur eða fulltrúa þeirra öllum rétti til þess að hafa áhrif á, hvaða verðlag skuli vera á annari aðalneysluvöru manna hér á landi. Mig furðar það stórlega, að í slíku máli sem þessu, sem bæði er mikið fjárhagsatriði fyrir bændur að fá leyst á viðunanlegan hátt og snertir líka neytendur alstaðar í landinu, skuli nokkur þm. fást til þess að bera fram aðra eins brtt. og þessa, þar sem réttindin eru algerlega tekin af öðrum aðilanum til þess að eiga nokkurn hlut að máli, og eingöngu fengin í hendur hinum aðilanum. Það vita allir, og líka hv. þm. V.-Húnv., að þetta mál verður ekki til lykta leitt, svo vel sé, nema með samtökum allrar þjóðarinnar, og því betur sem gagnkvæmari skilningur er á báða bóga.
Hvað er verið að gera með þessum l., sem hér er verið að setja? Í fyrsta lagi er verið að reyna að tryggja það, að sem mest og bezt not verði af innanlandsmarkaðinum. Það er sá eini markaður, sem þjóðin getur algerlega ráðið yfir sjálf, því að erlenda markaðinum ráðum við ekki yfir, heldur verðum við að gera samninga við önnur lönd, til þess að geta notað hann. Og það fyrsta, sem á þá að gera í þessu skyni, er að fyrirbyggja, að bændur eyðileggi sjálfir markaðinn fyrir sér með undirboði. Það er það, sem reynt er að gera með þessum l., og að hinu leytinu er reynt að draga úr þeim mikla dreifingarkostnaði, sem hefir verið á þessari vöru, eins og á svo fjölmörgum öðrum vörutegundum. Þetta eru tvö aðalatriði þessa máls, a. m. k. frá mínu sjónarmiði. Það sjá allir, að til þess að ná þessu takmarki, sem sett er með l., þá varðar það mestu, að góð samvinna fáist um málið, að sú samvinna fáist, sem er nauðsynleg til þess, að þetta mál verði leyst til hagnaðar fyrir alla aðila. Þessi hv. þm. veit líka vel, að málið verður ekki leyst á þann hátt, að annar aðilinn sé kúgaður til hagsbóta fyrir hinn. Þegar Alþ. veitir stofnun svo mikið vald, eins og kjötverðlagsnefndin á að hafa, að það afhendir henni þann hluta af þeim rétti, sem það telur sig hafa til þess að ákveða heildarverðlag á annari aðalframleiðsluvöru landsmanna, þá furðar mig mjög á því, að nokkur þm. skuli vilja láta þetta vald í hendur einungis annars aðilans í málinu. Það er frekar sanngirni í till. hv. þm. Ak. og fleiri þm., þar sem þeir gera þó ekki ráð fyrir að svipta neytandann öllum rétti til íhlutunar í þessum efnum, þó að þeir gangi þar lengra en gert er í frv. sjálfu. Ég fæ ekki betur séð en að það hafi verið mjög vel í hóf stillt með till. þeim, sem stj. hefir gert í frv., þar sem ákveðið er, að bændasamtökin í landinu skuli hafa 2 menn í kjötverðlagsnefndinni, og neytendasamtökin 2 menn, en að 5. maðurinn sé svo fulltrúi landbrh., og hann hafi úrskurðarvaldið. Með þessu á ríkið að hafa þá tryggingu, sem það annars getur haft, til þess að ekki sé gengið á rétt annars þess aðila, sem þarna á hlut að máli.
Mér skilst á hv. þm. V.-Húnv., að hann gangi út frá því, að hér sé um að ræða ráðstafanir, sem gerðar séu á frjálsum grundvelli, og þá væri hans till. sanngjörn, því að ef svo væri, að bændur sjálfir, án aðstoðar þingsins eða annara aðila, ætluðu sér að ráða einir yfir kjötmarkaði landsins, þá ættu þeir að skipa n. sem þessa einir. En það er ekki eins og svo sé, því að fyrst og fremst hefir ríkissjóður sérstök útgjöld vegna þessara ráðstafana, þar sem upp í fjárl. er tekin ákveðin upphæð til þess að standa straum af kostnaði við framkvæmd kjöt- og mjólkursölulaganna, en af því leiðir, að ríkið sem heild á að hafa íhlutun um þetta mál.
Hv. þm. sagði, að með þessu frv. ætti að hábinda bændur. Ég get ekki séð, að bændum sé gert neitt rangt til með skipun þessarar n., því að við skipun hennar er aðeins reynt að hafa svo mikinn jöfnuð sem hægt er, og það er réttlátt. Hvern væri verið að hábinda, ef neytendur, sem í raun og veru borga brúsann, eiga engan tillögurétt að hafa í málinu? Hv. þm. sagði líka, að verið væri að setja snarvöl á bændur með þessu frv., en ég vil aðeins vænta þess, að hv. d. setji þá þann snarvöl á þessa brtt., sem við á, vegna þess að hún er í alla staði ósanngjörn.