05.11.1934
Neðri deild: 28. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í B-deild Alþingistíðinda. (814)
27. mál, sláturfjárafurðir
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Ég þakka hv. 6. landsk. fyrir þá yfirlýsingu, að ef um frjáls samtök bænda hefði verið að ræða, ætti stjórn þessara mála að vera í þeirra höndum. En hvað er löggjöfin annað en trygging gegn því, að einstakir framleiðendur innan bændastéttarinnar geti rofið samtök bænda og þar með unnið þeim tjón? En þessum mönnum vill hv. þm. hjálpa. Það yrði eitthvað annað uppi á teningnum, ef hv. þm. væri að tala um strækubrjóta í sínum eigin félagsskap. Og hann er undrandi yfir því, að ég skuli vilja tryggja samtök bænda sem bezt. En við stefnum báðir að sama marki, hvor á sínu sviði. Hann meðal verkalýðsstéttarinnar, en ég meðal bænda. Fyrir okkur báðum vakir að mynda svo sterk samtök utan um hagsmuni þessara stétta, að órjúfandi séu. Og það er svo fjarri því, að með þessu sé verið að spilla góðri samvinnu. Vill hv. þm. halda því fram í alvöru, að verklýðsfélag ætti að bjóða vinnuveitanda inn á fund, þar sem það væri að bollaleggja, hvaða taxta það ætti að setja, og ráðgast um taxtann við þá á því stigi málsins? Nei, fyrst mundu verkamenn ræða taxtann innan síns félags, og þá fyrst ráðgast um við atvinnurekendur, ef árekstur yrði. Eins yrði það með núv. skipun kjötverðlagsn. ósanngjarnt, að fulltrúar neytenda fái að vera með í ráðum um það verð, sem bændur setja á kjöt sitt. Komi í ljós, að verðið hafi verið ákveðið of hátt, fæst vafalaust leiðrétting þess, því að sæmilegt verð er engu síður hagur framleiðenda en neytenda.
Mér skildist, að hv. þm. Mýr. væri að reyna að þvo sál sína hreina af öllum þeim óhreinindum, sem á hana kynnu að falla vegna sambandsins við sósíalistana. En hann getur tæpast fengið svo sterkan lút, að þau óhreinindi muni af honum ganga, - hann má vera viss um það, að sá kisuþvottur, sem hann reyndi hér í d. áðan, þvær hann ekki hreinan fyrir bændum.
Hv. 6. þm. Reykv. talaði um dúfu úr hrafnseggi, og skildist mér hann vera skotinn í henni. En þetta kemur af því, að fuglinn hefir útlit dúfunnar, en innræti hrafnsins. Það er búið að sýna fram á það með óyggjandi rökum, að þessi till. stefnir til eyðileggingar á málinu, og meira að segja hv. flm. hefir viðurkennt þessi rök. Hv. 6. þm. Reykv. talaði eitthvað um fóstureyðingar í þessu sambandi. Ég veit nú ekki eiginlega, hvar það á heima í þessu máli. nema ef vera skyldi, að þungi hv. 9. landsk. hafi verið runninn frá rótum hv. 6. þm. Reykv., og verður þá skiljanlegri áhugi þess síðarnefnda fyrir þessum vanskapnaði. Ég skal ekki fara lengra út í þá sálma, en mér þykir vænt um, að hv. 9. landsk. hefir fallið frá till. sinni, og væri mér einkar kært að styðja hann á þessari braut réttlætis, sem hann þar með, ef til vill óafvitandi, er kominn inn á. Hinsvegar mun ég gera það, sem ég get, til að vinna á móti þeirri skaðræðisstefnu, sem hv. 6. þm. Reykv. hefir nú tekið að sér. Auðséð er, af hvaða toga slíkt er spunnið. Það er af engu öðru en fjandskap við samtök bænda. - Sú till., sem ég flyt um stjórn þessara mála, er í samræmi við svipuð mál hjá nágrannaþjóðum okkar, og ætti okkur ekki að vera vansi að því að ganga í sömu slóð og þeir. Það hefir verið bent á, að samtök framleiðenda væru þar betri og víðtækari en hjá okkur. En engin ástæða er til þess að snúa baki við samtökum framleiðenda, þótt þau séu ekki orðin það þroskuð, að þau geti stjórnað sínum málum án íhlutunar ríkisvaldsins. Og á slíkum tímum og þeim, sem nú standa yfir, er það skylda þjóðfélagsins að rétta þegnum sínum hjálp til sjálfshjálpar, þar sem því verður við komið. Og búskapur bændanna verður að bera sig. Nú hefir mikill þorri bænda tekið á sig skuldbindingar vegna lántaka úr Kreppulánasjóði. Og eðli bænda er þannig, að þeir geta ekki hugsað til þess að geta ekki staðið í skilum við þessa stofnun. Og hvar lendir þetta, ef búskapurinn er rekinn með halla frá ári til árs? Þá kemur að því, að bændur geta ekki með nokkru móti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Kreppulánasjóði, og ríkissjóður verður að borga brúsann. Þetta ættu hv. þm. að athuga áður en þeir fara að skera við neglur sér þann ágóða, sem bændur gætu haft af þessum ráðstöfunum. Og bændurnir vitu sjálfir bezt, hvar skórinn kreppir, og því ættu þeir að fá að stjórna þessum málum sem allra mest.