05.11.1934
Neðri deild: 28. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 711 í B-deild Alþingistíðinda. (818)

27. mál, sláturfjárafurðir

Jón Pálmason:

Það hefir að vísu verið vægilega mælt gegn brtt. mínum og hv. þm. Ak. á á þskj. 288, enda eru þær svo sanngjarnar, að erfitt er að mæla á móti þeim með rökum. Þó hefir hv. form. landbn. lagt gegn því að þær yrðu samþ., en eftir því, sem mér skildist, meir vegna þess, að hann taldi þær óþarfar, en hins, að þær væru ósanngjarnar. Um það atriði, að skylt sé að veita þeim verzlunum söluleyfi, sem höfðu starfandi sláturhús árið 1933, og einnig þeim samvinnufélögum, sem stofnuð kunna að verða, fór hv. 8. landsk. þeim orðum, og færði svo góð rök fyrir, hve sjálfsagt það er, að ég sé ekki ástæðu til að ganga lengra á það. En frekar er ástæða að ræða nokkru nánar um þá brtt., sem gerir ráð fyrir að fjölga í verðlagsnefnd um 2. Ég skal taka undir það, að ekki muni heppilegt að skipta um menn í n. Hætt við, að slíkt valdi ágreiningi. Hitt horfir öðruvísi við, að bæta við í n., og gengur till. okkar hv. þm. Ak. í þá átt, og að nokkru á móti till. hv. þm. V.-Húnv. Við hina, er hv. form. landbn. lagðist á móti, að Verzlunarráðið fengi fulltrúa í n., má fyrst og fremst svara því, að undirstaða þess, að lögin komi að gagni, er sú, að allir, sem við þau eiga að búa, séu ánægðir með þau. Margar verzlanir hafa haft kjöt og aðrar landbúnaðar vörur til sölumeðferðar á undanförnum árum, og því rétt, að þær eigi hlutdeild í málinu.

Skal ég þá víkja að öðrum brtt. og ganga nokkru nánar inn á málið. Hv. þm. V.-Hún. virtist vera til með, að bændur gengju inn á þá braut verklýðsfélaganna, að knýja mál sín fram með valdi samtakanna. Það er vitanlegt mál, að á síðustu árum höfum við bændur selt kjöt undir framleiðsluverði, og stafa hin miklu fjárhagsvandræði af því, að ekki hefir fengizt það verð fyrir afurðirnar, sem endurgreiddi meðalframleiðslukostnað. Hann er að vísu talsvert misjafn frá ári til árs, eftir árferði og dýrtíð. Svo ég víki aftur að fyrirmynd verklýðsfélaganna og þeirra kaupstreitustarfi, þá er það frá mínu sjónarmiði til varnaðar, en ekki að það sé eftirsóknarvert að ganga þá götu, og býst ég við, að svo sé frá sjónarmiði allra, sem á það líta frá alþjóðafjárhagslegu sjónarmiði. Það er nauðsynlegt að hafa þá með í ráðum um þessi mál, sem mesta hafa verzlunarþekkingu og reynslu á því sviði. Það þarf að reikna nákvæmlega út, með hvaða verði er sanngjarnt og hæfilegt að selja á hverjum tíma, til þess að sem mest seljist, hve mikið markaðurinn þolir o. s. frv. Vitanlega eru takmörk fyrir því, hve mikið og lengi er hægt að selja undir framleiðsluverði. Og sé ekki hægt að ná því, verður að breyta til og framleiða annað, en því verður ekki breytt í einum svip. Það er athugavert í þessu sambandi, að því hærra, sem kaupið er spennt, svo atvinnuvegirnir bera sig ekki, því meira verður atvinnuleysið. Sama má segja um markaðinn; því hærra verð, því minni sala. Það er því mikið undir komið að rata hér rétta leið, svo hagur framleiðenda sé sem bezt tryggður. Ég fullyrði því, að hyggilegast sé að hafa í n. fulltrúa frá sem flestum stéttum og reyna að ná samhug allra til þess að fá frið um lögin. Er því sjálfsagt að nota alla þekkingu í þessu efni, hvaðan sem hana er að fá. - Ég ætla svo ekki að fara fleiri orðum um þessar till. okkar hv. þm. Ak., en vona, að hv. þdm. sjái, hvað fyrir okkur vakir.

Að endingu vil ég taka það fram, að frá mínu sjónarmiði eru frjáls samtök bænda sú eina rétta leið í þessu máli, og því sú langæskilegasta. Enda hefðu þeir átt að geta haft vald á markaðinum. En úr því að þetta hefir ekki tekizt, en gengið hefir verið inn á að skipa þessa n. með þeim hætti, sem gert hefir verið og ég tel ekki allskostar réttan, er sjálfsagt að reyna að bæta úr misfellunum, eftir því sem bezt má verða. - Sé ég svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta að sinni.