05.11.1934
Neðri deild: 28. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 717 í B-deild Alþingistíðinda. (823)
27. mál, sláturfjárafurðir
Sigurður Einarsson:
Ég ætla einungis að gera stutta aths. Það var rétt skilið hjá hv. 6. þm. Reykv., að ég hefi í hyggju að taka till. mína aftur til 3. umr. Ég get ekki stillt mig um að láta í ljós ánægju mína yfir því, að skilningsljós hv. 6. þm. Reykv. skuli loga svo skært í dag. Það er meira en hægt var að segja um það stundum undanfarna daga. - Um þetta vil ég annars segja, að það, að hann hefir talið sig mundu taka upp mína till., læt ég mér í léttu rúmi liggja; við því er ekkert að segja. En ég vil benda hv. þm. á það, að þá tekur hann á sig ásakanir þær, sem fólust í orðum hv. 7. landsk., hv. þm. A.-Húnv. og hv. þm. Borgf., að mín till. væri meinsemd í frv. Hv. þm. ræður vitanlega, hvort hann vill taka ummæli þessara hv. þm. til greina, en ég tel mér skylt að taka það til greina, sem hefir verið upplýst í málinu. Ég mun því bera fram till. við 3. umr. málsins. Hvað efni og orðalag þeirrar till. snertir, þá hefi ég borið mig saman við hv. 2. þm. N.-M., og hann hefir ekkert við þetta að athuga. Ég hefi þannig fundið leið í þessu máli, sem fullnægir mínum tilgangi án þess að vera þyrnir í augum þeirra bænda, sem sæti eiga á þingi, og annara þeirra, sem styðja þetta mál.