05.11.1934
Neðri deild: 28. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 718 í B-deild Alþingistíðinda. (824)
27. mál, sláturfjárafurðir
Pétur Halldórsson [óyfirl.]:
Ég mótmæli því ákveðið, sem hæstv. forsrh. hélt fram, að ég hefði sagt, að ég ætlaðist til þess, að þeim verði borgað hærra verð, sem framleiða í nágrenni Rvíkur, þegar þeir væru neyddir til þess að fara í Mjólkurfélagið vegna þess að þeirra framleiðslukostnaður væri hærri. Ég neita því eindregið að hafa sagt þetta. Ég sagði, að það ætti að taka af þeim þá góðu aðstöðu, sem þeir hafa haft. Þeir hafa fengið hærra verð, en þeir áttu fullkominn rétt á því.
Framleiðslukostnaður þeirra kemur þessu ekkert við. Þeir eiga rétt á hærra verði, vegna þess að af þeim hafa verið tekin fríðindi með valdi, fríðindi, sem stjskr. tryggir þeim, að ekki megi taka af þeim, nema með því móti að einhverjar bætur komi í staðinn. Þess vegna neita ég því harðlega að hafa sagt, að þeir gætu gert tilkall til hærra verðs vegna hærri framleiðslukostnaðar, heldur af því, að af þessum mönnum hefir verið tekin góð aðstaða, sem þeim bar með réttu að hafa.
Annað þýðingarmikið atriði er í þessu efni, sem hæstv. forsrh. svaraði ekki. Það var það. hvað hæstv. ráðh. og stj. ætluðu að gera, ef þúsund tunnur seldust ekki í byrjun næsta framleiðslutímabils. Hann sagði, að aðferðin, sem ætti að nota, væri ekki ákveðin enn. Ég vil segja við hv. ríkisstj., að í upphafi skuli endirinn skoða. Þessi rök eru óviturlega undirbúin, ef þessi endir er ekki skoðaður í upphafi. Þetta er svo stórvægilegt atriði í málinu, að það má ekki ganga fram hjá því.
Í Danmörku og Írlandi er ýmsum aðferðum beitt, eins og hæstv. forsrh. gat um. Mér er spurn, hvernig er þessu farið í Danmörku? Þar er svo ástatt, að ríkisvaldið þorir ekki að taka þetta að sér, en gerir það eitt að banna mönnum að framleiða. Það vill ekki eiga það á hættu að fram komi krafa um, að það standi við lög sín og loforð og borgi skaðann. Þar eru sett lög um takmörkun framleiðslunnar. Þetta er aðferðin, sem beitt er til þess að komast undan ábyrgð slíkrar löggjafar, sem hér um ræðir.
Hér er ekkert gert í þessu efni. Ríkisvaldið ætlar ekki að tryggja þessa ábyrgð. Það liggur þó beint við að gera það, ef ríkisvaldið treystist ekki til þess að standa við fyrirskipanir sínar, með því að taka fjárhagslegum afleiðingum af þeim. Endirinn er nefnilega ekki skoðaður í upphafi. Það er ekki rétt af þessu þingi að setja lög án þess að reynt sé að gera grein fyrir mögulegum afleiðingum þeirra. Framleiðendur hafa haft valdið í þessu máli hingað til, en ríkið hefir enga ábyrgð borið á því fyrr en nú. Ég vildi óska, að það tækist vel nú, þegar ríkisvaldið hefir lagt sína hönd á málið.
Það er ekki rétt, að verðið hafi verið frjálst. Það var frjálst af ríkisvaldsins hálfu, en ekki að öðru leyti, því að það var ákveðið af svokölluðum umboðsmönnum framleiðenda. Þeir ákváðu verðið, og ég hygg, að þeim hafi tekizt það sæmilega. En nú er þetta á ábyrgð ríkisvaldsins, og um slíka löggjöf, sem grípur svo stórkostlega inn í þjóðina, er það brýn nauðsyn, að endirinn sé skoðaður í upphafi.