19.10.1934
Neðri deild: 14. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í B-deild Alþingistíðinda. (876)
16. mál, eldspýtur og vindlingapappír
Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég skal verða við ósk hv. þm. um að gera till. til orðabreyt. á frv. fyrir 3. umr., enda þótt ég líti svo á, að um efnið sé meira vert en formið, ef frv. eru yfirleitt á sæmilegu máli.