19.10.1934
Neðri deild: 14. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (884)

16. mál, eldspýtur og vindlingapappír

Frsm. minni hl. (Jakob Möller) [óyfirl.]:

Ég vil aðeins skjóta því til hv. þm. V.-Ísf., hvort hann gæti ekki fallizt á, að það væri misskilningur hjá honum, að eftir því sem vöruverð í heildsölu hefði lækkað, hefði smásöluverðið ekki lækkað að sama skapi, en að mismunurinn hefði ekki runnið í vasa kaupmanna, vegna þess að fjölgað hefði í stéttinni. Ég held, ef hann athugar þetta nánar, að þá muni hann geta fundið aðrar ástæður, sem sé þær, að þó vöruverð lækki, lækkar ekki að sama skapi annar kostnaður, m. a. vegna þess, að kaupgjald hefir ekki lækkað tilsvarandi við vöruverð, heldur jafnvel hækkað, og mikill hluti rekstrarkostnaðarins liggur í kaupgjaldsgreiðslu. Ég er hræddur um, að það sé skakkt hjá honum, og sízt meira réttlæti í þeirri skoðun hv. þm., að af þessum ástæðum, sem hann taldi, hafi fjölgað í kaupmannastéttinni. Ég veit nú ekki, hvort það er rétt hjá honum, að það séu mikil brögð að því. En ég tel, að hér í bænum a. m. k. liggi til þessa aðrar og eðlilegar ástæður, sem sé að það stafi af því, hve fólkinu fjölgar hér hröðum fetum. Ég álít því, að hv. frsm. hafi í engu hróflað því, sem ég sagði, að með því að taka vörurnar af kaupmönnunum hækki verðið á öðrum vörum. Hitt má vel vera, að stjórnarflokkunum heppnist að ganga svo frá þessum málum með tíð og tíma, að einstaklingsframtakið komi ekki til greina í verzlunarmálum. Eða ég geri ráð fyrir því, að þeir geri þetta vitandi vits, a. m. k. sá flokkurinn, sem veit hvað hann vill og gengur vitandi vits að sínu starfi, að koma öllu undir ríkið.

Ég verð að segja, að mér finnst hálfleiðinlegt fyrir þá stjórnmálamenn, sem láta berast af straumnum, að þeir skuli ganga blindandi út í hann og vita ekki, hvað þeir eru að gera, gera sér ekki grein fyrir, hvert stefnir. Annars er þetta um straum tímans tilefni í langar hugleiðingar, sem ég geri ráð fyrir, að hæstv. forseti, þó hann hafi sýnt einstakt umburðarlyndi hér í d., geti látið sér leiðast. Ég held, að það sé vitleysa hjá hv. þm., að straumur tímans gangi með sósíalistum, heldur mun hann þvert á móti ganga móti þeim. Enda held ég, að það sé orðið svo erlendis, að sósíalistar fjarlægist nú sem óðast sína stefnu, og í því sambandi koma mér í hug orð forsrh. Dana, Staunings, að hann vildi ekki á nokkurn hátt skerða einstaklingsfrelsið. Það er ekki svo, að straumur tímans sé með hreinræktuðum kenningum þeirra rauðu, heldur er hann á móti þeim.