10.11.1934
Efri deild: 35. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 762 í B-deild Alþingistíðinda. (898)
16. mál, eldspýtur og vindlingapappír
Frsm. meiri hl. (Jón Baldvinason) [óyfirl.]:
Þegar frv. til l. um einkasölu á tóbaki var borið fram í seinna skiptið, þá var líka gert ráð fyrir að taka einkasölu á eldspýtum. Það er ákaflega þægileg vara að verzla með og getur gefið nokkrar tekjur í ríkissjóðinn. Það náði ekki fram að ganga þá og var fellt úr frv., en nú er það komið hér sem sérstakt frv. og hefir gengið í gegnum hv. Nd. Fjhn. hefir nú athugað málið og hefir klofnað um það, eins og sést á þeim þskj., sem fyrir liggja. Leggur meiri hl. n. til, að það verði samþ., að vísu með dálítilli breytingu.
Í þessu frv. er einnig gert ráð fyrir því, að tekin sé einkasala á vindlingapappír, og er það nokkuð eðlilegt, því að ríkið flytur inn alla vindlinga, sem fluttir eru til landsins, eða á að gera það, enda ætla ég, að það sé alstaðar gert þar, sem einkasala er á tóbaki, að hafa vindlingapappír með. Ef það væri frjálst að flytja inn vindlingapappír, þá mundi hann talsvert mikið verða notaður og minnka sölu á sígarettum hjá einkasölunni. En hinsvegar er þetta vörutegund, sem álitið er, að ríkið geti tekið nokkurn skatt af. Meiri hl. n. hefir fallizt á þá till., sem fram hefir komið, að bæta við og taka inn í frv. heimild um einkasölu á vindlingapappír og vindlingakveikjurum, og nær það vitanlega yfir hverskonar tegundir þeirra.
Ég hefi í rauninni ekki miklu meira um þetta að segja. Það var eitthvað rætt við 1. umr., og get ég því beðið átekta, ef fram kemur eitthvað í umr., sem meiri hl. n. þykir ástæða til að tala á móti eða gera aths. við.