04.10.1934
Efri deild: 2. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2829 í B-deild Alþingistíðinda. (95)

Afgreiðsla þingmála

Magnús Guðmundsson:

Ég get ekki fallizt á það, þrátt fyrir upplýsingar hæstv. forsrh., að hæstv. stj. eigi ekki sökina á því, að stjfrv. hefir ekki verið útbýtt enn. Það er bert af því, sem hæstv. forsrh. sagði, að þessi dráttur stafar af því, að stj. hefir teflt á fremsta hlunn með ferðir. Ég sé því ekki betur en að sökin sé stj. Og a. m. k. hefði verið hægt að senda frv. strax frá Osló til Kaupmannahafnar, í stað þess að láta þau bíða í skipinu í Osló.