19.11.1934
Efri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 776 í B-deild Alþingistíðinda. (952)

17. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Magnús Guðmundsson:

Ég skal taka það fram strax, að ég tel ekki hægt að komast hjá því að samþ. þetta frv. Það gefur talsverðar tekjur í ríkissjóð, og það árar ekki svo nú, að hægt sé að fella niður þá tekjustofna, sem ríkissjóður hefir áður haft. Þess vegna er ég samþ. hv. meiri hl. n. um það, að ekki sé hægt að komast hjá þessu, og það því fremur, sem felldur hefir verið niður talsverður tekjustofn, sem ég held, að hefði verið hægt að nota a. m. k. eitt ár ennþá.

Það vakti eftirtekt í fyrra, þegar gerðir voru samningar milli jafnaðarmannaflokksins í Danmörku og bændaflokksins um skattamálin, þá komu þeir sér saman um að hækka kaffi- og sykurtollinn, og var hann þó alls ekki lægri heldur en hér. En ég skal ekki fara út í það mál, úr því að ég tók ekki til máls um næsta mál á undan á dagskránni (frv. um gengisviðauka).

En ég vil aðeins láta það í ljós sem mína skoðun, að ég get alls ekki talið rétt undir þeim kringumstæðum, sem nú eru, að draga úr tekjum ríkissjóðs; það þarf þvert á móti að bæta við þær, og ég get ekki séð annan skatt betri heldur en skatt, sem er lagður á skemmtanir manna, sem þeir geta yfirleitt verið án. En hitt er náttúrlega álitamál, hvort hann á frekar að renna í sveitar- eða bæjarsjóði eða í ríkissjóð. En eins og nú stendur er ekki hægt að komast hjá því að láta ríkissjóð halda öllum þeim tekjustofnum, sem hann hefir haft.