09.10.1934
Neðri deild: 5. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 778 í B-deild Alþingistíðinda. (960)

22. mál, verkamannabústaðir

Thor Thors:

Það eru aðeins fáein orð um málið í heild. Ég býst við, að mér gefist síðar tækifæri til að ræða einstök atriði þess. Frv. er að miklu leyti endurprentun á l. um verkamannabústaði frá 1931. Ég tel ekki ástæðu til að víkja að þeirri löggjöf, sem ég fyrir mitt leyti tel mjög þarfa og réttláta, en þær aðalbreyt., sem hér eru á gerðar, eru í raun og veru þrjár. Í fyrsta lagi eru allir byggingarsjóðir hinna einstöku kaupstaða og kauptúna sameinaðir í einn byggingarsjóð. Þessa breyt. tel ég tvímælalaust til bóta og get fallizt á þær röksemdir, sem koma fram í grg. frv. og ræðu hæstv. ráðh. Í öðru lagi er sú breyt., sem gerð er í 4. gr. frv. og fer fram á, að ekki sé heimilt að hafa nema eitt byggingarfélag í hverju kauptúni eða kaupstað. Ég verð að telja þetta galla frá því, sem nú er í l. um verkamannabústaði, af því að með þessu er beinlínis unnið að því að gera færri menn aðnjótandi vildarkjara laganna. Ég sé ekki annað en að þeir menn, sem sérstaklegu hafa barizt fyrir málinu, ættu að bera þá ósk í brjósti, að l. væru það víðtæk, að sem flestir fengju notið þeirra, en það er tvímælalaust, að ef fleiri félög eru innan sama kaupstaðar myndu fleiri menn notfæra sér l. en ef aðeins eitt félag hefði til þess skilyrði.

Þriðja breyt., sem gerð er á gildandi l., leiðir að nokkru leyti af aðalbreyt. um einn allsherjar byggingarsjóð, en hún er um sjóðstjórnina. Samkv. gildandi 1. eiga bæjarstj. að velja 2 menn með hlutfallskosningu í sjóðsstj. Þetta tryggði tveim aðalstjórnmálafl. a. m. k. þátttöku í stjórn sjóðanna. Í frv. eru ákvæði um, að atvmrh. skipi alla 3 mennina í stj. byggingarsjóðs. Þetta tryggir engan veginn, að allir stjórnmálafl. innan kaupstaða og kauptúna landsins eigi fulltrúa í þessari allsherjar sjóðsstjórn. Ég teldi því réttara, að stj. væri kosin hlutfallskosningu af sameinuðu Alþingi. Það myndi tryggja helztu stjórnmálafl. þátttöku. Fer ég svo ekki frekar út í þetta að sinni, því að ég býst við, að málinu verði vísað til allshn., og þar sem ég á sæti í þeirri n., gefst væntanlega tækifæri til að athuga það nánar.