17.10.1934
Neðri deild: 12. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 780 í B-deild Alþingistíðinda. (966)
22. mál, verkamannabústaðir
Garðar Þorsteinsson:
Ég skal þegar geta þess að hv. þm. Snæf. hafði sérstaklega gert ráð fyrir að hafa orð fyrir brtt. minni hl. allshn., en þar sem hann er ekki viðstaddur, mun ég í stuttu máli gera grein fyrir þeim. Eins og kunnugt er, þá er í lögum um verkamannabústaði ákvæði um það, á hvern hátt afla skuli fjár til þessara byggingarsjóða, og hefir í Rvík einni myndazt sjóðir yfir 100 þús. kr. á ári. Eins og kunnugt er, þá hefir Byggingarfélag. verkamanna hér í bænum hafizt handa um byggingar og byggt nokkra verkamannabústaði. En það hefir orðið nokkur óánægja um þessar byggingar, og hafa ýmsir verkamenn, sem hús hafa viljað fá, ekki getað fellt sig við þann byggingarmáta, sem byggt hefir verið eftir, og því stofnað annað byggingarfélag, sem nefnt hefir verið Byggingarfélag sjálfstæðra verkamanna. Það hefir að vísu ekki tekið til starfa ennþá, en kosið sér stjórn og sett sér lög, og ég hefi hvergi séð því haldið fram, að ekki hafi verið frjálst að stofna þetta félag og að það eigi fullan rétt á sér. En nú ber svo til, að í 4. gr. frv. þessa er svo kveðið á, að byggingarsjóður veiti aðeins lán til eins byggingarfélags í hverjum kaupstað eða kauptúni. Með þessu virðist eiga að útiloka þetta nýstofnaða byggingarfélag frá því að fá lán úr byggingarsjóðnum, en minni hl. allshn. lítur svo á, að slíkt sé alveg óviðeigandi. Hann telur þvert á móti sjálfsagt, að framlagi Rvíkurbæjar til byggingarsjóðs sé varið til styrktar jafnfjölmennum hóp manna og skipa Byggingarfélag sjálfstæðra verkamanna. Hann getur því ekki sætt sig við, að lánsheimild byggingarsjóðanna sé takmörkuð við eitt byggingarfélag í hverjum kaupstað eða kauptúni, og fyrir því höfum við minni hl. allshn. borið fram brtt. á þskj. 82, þess efnis, að byggingarsjóður veiti lán til byggingarfélaga, sem reist eru á samvinnugrundvelli og að öðru leyti fullnægi skilyrðum 6. gr. frv. Ég fyrir mitt leyti fæ ekki séð neina ástæðu fyrir því, hvers vegna meiri hl. allshn. hefir sett sig á móti þessari brtt. og hvers vegna stj. hefir sett þetta útilokunarákvæði inn í frv., aðra en þá, að hér sé um að ræða pólitískt mál frá þeirra hlið. Þeir vilji útiloka þessa menn frá þessum nauðsynlegu hlunnindum sakir þess, að þeir búist við, að þeir muni ekki verða þeim eins fylgispakir í pólitík eins og þeir óska. En að fara að blanda pólitík inn í jafnmikið hagsmunamál hinna efnaminni borgara og hér er um að ræða, er vitanlega stórhættulegt og óviðeigandi.
Þar sem hv. þm. Snæf. er nú mættur á fundinum, mun hann gera fyllri grein fyrir brtt. okkar. Ég skal því aðeins taka það fram að síðustu, að ég tel það vel farið, að með brtt. allshn. er því slegið föstu, að ekki megi taka fé frá einni deild sjóðsins og lána annari, nema þá aðeins til bráðabirgða.