17.10.1934
Neðri deild: 12. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 804 í B-deild Alþingistíðinda. (988)

22. mál, verkamannabústaðir

0988Sigurður Einarsson:

Hv. þm. A.-Húnv. hefir kosið að setja þetta mál um verkamannabústaði í sambandi við það, sem hann nefnir ofvöxt bæjanna. En hvað vill hv. þm. A.-Húnv. gera til þess að snúa við þessum fólkstraumi í kaupstaðina? Hvers vegna dettur honum í hug að ræða þessa straumbreytingu í sambandi við verkamannabústaðina? Það verður að gera ráð fyrir þeirri alvöru hjá hv. þm., að því aðeins taki hann svo djúpt í árinni í máli þessu, að hann sjái sér hér leik á borði til að hindra strauminn í kaupstaðina. Og hann tekur sér þá aðstöðu að vera andvígur frv., sem hér liggur fyrir, og ég hef grun um, að hann telji sig fylgjandi brtt. þeim, sem hv. 8. landsk og hv. þm. Snæf. bera fram. Hann skilur brtt. þeirra um tvö byggingarfélög hér í bæ sem meðal að því marki, að fólk fýsi ekki að flytjast hingað. Öðruvísi verður framkoma hans ekki skilin. Og sannleikurinn er sá, að þessi hv. þm. talaði einlæglega í anda síns flokks, og með hliðsjón af ræðu hans verða allar þær ræður, sem hv. þm. Sjálfstfl. hafa flutt hér í d. um þetta mál, mjög svo auðskildar. Meiningin slapp upp úr hv. þm. A.-Húnv. Hún er sú, að koma því til leiðar, að minna verði byggt, færri geti notið fríðinda þessara l., bærinn verði óbyggilegri, svo að fólki verði ekki lífvænt í honum, og freistist ekki til þess að yfirgefa sveitirnar. Hv. þm. A.-Húnv. sér í andstöðu við framgang málsins möguleika til þess að vinna að straumbreytingu í þá átt, að fólk langi ekki í kaupstaðina. Þá aðra hv. þm. Sjálfstfl., sem talað hafa, hefir vantað hreinskilni hv. þm. A.-Húnv. Þeir hafa ekki þorað að viðurkenna eins og hann, að ætlun þeirra væri sú, að gera fátækum mönnum lítt viðvært í Reykjavíkurbæ. En hver getur efast um það hér eftir?

Einhver hv. þm. var að skopast að því, að ég hefði nefnt lágar tölur, þegar ég minntist á byggingarþörf manna í litlum kauptúnum. Það eru til þorp með þetta 2-300 íbúa, og þar eru kannske þetta 5, 6, 7 eða 8 menn, sem gætu fullnægt skilyrðum þessara l., ef lán fengist. En hinir eru fleiri, sem ekki hafa aðstöðu til þess að nota sér fríðindi l. - Og þetta er sannarlega ekki neitt til að skopast að. Ég kom síðastl. sumar í lítið þorp, sem algerlega er stjórnað af flokksmönnum hv. 3. þm. Reykv. Þar þekkti ég fátækan mann, föður sjö barna, sem fór þess á leit við hreppsnefndina, að hún hjálpaði sér til þess að hann gæti dyttað að kofanum sínum. Hann fékk afsvar, enda þótt hann hefði læknisvottorð um það, að íbúð hans væri heilsuspillandi fyrir hann sjálfan og börn hans. Það var ekki fyrr en barnaverndarn. á staðnum skarst í leikinn, að hann fékk þessa lítilfjörlegu hjálp. Menn, sem svona er ástatt fyrir, eru því miður allt of margir, og það er sannarlega engin ástæða til þess að sjá ekki svo um, að þeir fáu menn í litlu kauptúnunum úti um landið, sem geta uppfyllt skilyrði l., fái færi á því, engu síður en þeir, sem í stórum kaupstöðum búa.